Sólskin - 01.07.1937, Qupperneq 84
vart við veggjalýs eða kakalaka í íbúð sinni?
Finna: Því ber að tilkynna það heilbrigðisfull-
trúa, og sér hann um, að íbúðin verði hreinsuð.
Ósk: Hafa veggjalýsnar tennur, til þess að bíta
með?
Finna: Nei, þær hafa ekki tennur, því að þær
bíta ekki, fremur en flær og lýs, þó það sé enn
í dag kallað svo. Þær hafa sograna, sem þær
stinga inn í húðina og sjúga blóð með honum,
þangað til þær eru úttroðnar eins og blöðrur.
Það er að segja, ef þær fá að vera í friði.
Teitur: Geta þær ekki verið matarlausar lengi,.
fyrst þær eta svona mikið í einu?
Finna: Jú, þær þola að svelta. í marga mánuði,
einkum ef kalt er.
Ása: Hvar eru veggjalýsnar á daginn?
Finna: Þær eru í rifum á þiljum, eða bak við
veggfóður eða myndir. En þegar allt er kyrrt
og hljótt á nóttunni, leita þær uppi f ólk í svefni,
til þess að sjúga úr því blóð.
Ása: Geta þær flogið?
Finna: Nei, þær hafa enga vængi, og verða
því að láta sér nægja það, sem þær komast
áfram skríðandi.
Ása: Þá er ekki annað en að hafa rúmin fram
á miðju gólfi.
Finna: Ónei, ekki gagnar það, því að þá skríða
82