Sólskin - 01.07.1947, Blaðsíða 66
Snati gamli var ekki alltaf eins og Bubbur
vildi hafa hann.
Einu sinni sem oftar var Bubbur litli úti á
túni að leika sér og voru lambið, kisa og Snati
gamli hjá honum. Bubbur tók hey og þóttist
vera að binda sátur, eins og hann hafði séð
pabba sinn gera. Hann hafði dýrin fyrir hesta,
þau voru dálítið óstýrilát, einkum kisa, hún
vildi vera í friði þar, sem vel færi um hana og
hún gæti sleikt sólskinið, en það var nú það,
sem Bubbur vildi ekki. Lambið lá jórtrandi
hjá honum, en Snati var alltaf að reyna að
strjúka frá þeim, en Bubbur kallaði alltaf í
hann, þá sneri Snati til baka. Að lokum lagð-
ist hann ósköp fýlulega fram á lappir sínar
skammt frá Bubb.
Bubbur batt nú tvær og tvær sátur saman
og lagði þær svo yfir hrygginn á dýrunum.
Hann byrjaði á því að láta upp á kisu, svo
varð hann að hafa aðra hendina á henni, með-
an hann lét upp á hin tvö, því annars var hún
vís til að hlaupa af stað með sáturnar. Það lá
ekkert sérlega vel á Snata gamla og sízt var
hann upplagður til þess að fara að bera sátur.
Til þess að láta Bubb vita þetta, glefsaði hann
ósköp laust í hendina á honum. Bubbur rak
64