Sólskin - 01.07.1967, Blaðsíða 18
þér, — sagði amma Aita. — Áður en þú kem-
ur í ríki Savios, verður þú að fara fram hjá
Klettatröllinu, sem býr uppi í fjallinu. Nú eru
ekki nema fá tröll í Lapplandi. Klettatröllið er
eitt þeirra. Þessi tröllkarl er einn sá grimmasti
í landinu, og hann getur gleypt þig í einum
munnbita. —
— Ég mundi taka með mér mikið af mat
handa Klettatröllinu, — sagði Sam, — þá mun
það sleppa mér fram hjá sér. —
— Getur verið, — sagði amma Aita. —
Nokkru hœrra uppi býr Vindatröllið, sem rœð-
úr yfir hinum fjórum vindum. Ef hann er í vondu
skapi, getur hann blásið þig svo langt í burtu,
að þú kemst aldrei heim aftur. —
— Ég skal gœta þess að velja dag, þegar
Vindatröllið sefur, og hann hefur lœst alla vind-
ana inni. —
— Verið getur að það heppnist, — sagði
amma Aita. — Ennþá lengra burtu munt þú
hitta Dýratröllið, sem rœður yfir öllum villidýr-
unum í Lapplandi, og þá mœtir þú kannski
úlfum, björnum, gaupum og jörfum. —
Þegar amma Aita hafði sagt Sam frá öllum
þeim hœttum, sem voru á veginum til ríkis
16