Sólskin - 01.07.1967, Page 75

Sólskin - 01.07.1967, Page 75
á höfði hans# herðum og höndum. Hann hljóð- aði og œpti hástöfum og œtlaði að stökkva til dyranna. En áður en hann komst þangað, féll hann til jarðar, marinn og blóðugur. En peningunum rigndi jafnt og þétt, og að lokum varð þunginn svo mikill, að gólfið brast í sund- ur# og gullsmiðurinn steyptist, ásamt pening- unurn, beint niður í kjallara. En peningunum rigndi enn, unz komin voru hundrað þúsund, og þá lá gullsmiðurinn dauður í kjallaranum og ofan á honum allir peningarnir. Þarna fundu svo nágrannarnir hann og sögðu: — Það er mein, þegar gœfan verður þung sem farg. — Svo komu erfingjarnir og skiptu öllum auðn- um á milli sín. Meðan þessu fór fram, hélt bóndinn glaður heim til sín og sýndi konu sinni hringinn. — Nú er búið baslið hjá okkur, góða mín, — sagði hann. — Nú höfum við höndlað hnossið. Við skulum hulgsa okkur vel um, hvers við eigum að óska. — Konan fann undir eins þjóðráð. — Hvað segirðu um það, — sagði hún, — að við ósk- um okkur stœrri akurs? Akurinn okkar er svo lítill. Það gengur stór geiri inn í akurinn okkar, 73

x

Sólskin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.