Sólskin - 01.07.1967, Page 49

Sólskin - 01.07.1967, Page 49
hennar allir, hver í sínu nafni. Kóngurinn, faðir þeirra, ótti að ráða gjaforði kóngsdóttur, því að faðir hennar var dauður, og með því að honum var jafnkœrt til allra sona sinna, þá veitti hann þeim það svar, að kóngsdóttir skyldi sjálf kjósa sér að brúðguma hvern þeirra, er henni geðjaðist bezt að. Lét hann því að ákveðnum degi kalla kóngsdóttur fyrir sig og auglýsir fyrir henni sinn vilja, að hún kjósi einhvern sona sinna sér til manns. Kóngs- dóttir mœlti: — Skyld er ég að hlýða því, er þú mœlir fyrir, en eigi ég að kjósa einn sona þinna, þá er ég í hinum mesta vanda stödd, því að ég verð að játa, að mér eru þeir jafn- kœrir, og ég get ekki tekið einn fram yfir ann- an. — Þegar kóngur heyrði þessi svör kóngs- dóttur, þótti honum vandast málið og hugsar nú fyrir sér, hvert ráð hann skuli upp taka, sem öllum gegndi bezt, og að lyktum kveður hann upp þann úrskurð, að þeir synir sínir skuli að ári liðnu verða komnir með sinn dýrgrip- inn hver, og skyldi sá fá kóngsdóttur, sem bezt- an hefði dýrgripinn. Létu kóngssynir sér þetta vel líka og ákváðu, að þeir skyldu allir finnast að ári liðnu í kastala úti á landsbyggðinni og 47

x

Sólskin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.