Sameiningin - 01.07.1888, Blaðsíða 22
—86—
þar næst komu fram tilögur nefndarinnar í málinu um
m i n n i s v a r ð a yfir s é r a P á 1 heitinn þ o r 1 á k s s o n,
þannig hljóðandi:
„Vér álítura rétt og skyldugt af kirkjufélagi voru að
taka þetta mál að sér, og skiljast ekki við það fyr en séra
Páli sáluga þorlákssyni hefir verið reistr tilhlýðilegr minnis-
varði. Vér ráðum til, að á þessu þingi sé kosin 8 manna
nefnd, til þess að vinna að framkvæmdum í málinu, að
nefnd þessi hafi lokið starfi sínu,*ef unnt er, fyrir næsta kirkju-
þing, og að forseti kirlcjufélagsins sé oddviti nefndarinnar."
(Nefndin).
Samþykkt.
Fundi slitið kl. 1 e. m.
9. FUNDPu. Fimmtudag 28. Júní, kl. 71 e. m.
þeir Pálmi Hjálmarsson, Haraldr Pétrsson, Eiríkr H,
Berginann og Sigurðr J. Jóhannesson ekki á fundi; hinn
síðast nefndi sjúkr. Gjörðabók frá síðasta fundi lesin og
samþykkt.
Samþylckt, að kirkjuþingið gjöri þá áætlan fyrir tekjum
félagsins á komanda ári, að þær verði ekki minni en 60 doll.
Frá nefndinni, sem upphaflega var sett í málinu um
skifting lcirkjufélagsins í deildir, en sem, eins og áðr er
getið, var aukin 2 mönnum, kom þessi tillaga í viðbót við
það, er þingið hafði áðr samþykkt frá nefndinni:
„Inn í ávarp kirkjuþings þessa til safnaða þeirra, er
séra Steingr. þorlálcsson þjónar í Minnesota, sé hœtt þeirri
athugasemd, er lýsi yfir því, að kirkjuþingið skori á söfn-
uði þessa að ganga þegar í félagið, enda þótt þeir að svo
stöddu eigi sjái sjer fœrt að senda erindsreka á kirkju-
þing samkvæmt fyrirmæluin grundvallarlaga félagsins."
Samþyklct.
því næst lagði nefndin í málinu: lcristi 1 eg játning
kirkjuþingsmanna fram álit sitt í tvennu lagi. Alit
minna hlutans (séra Steingríms þorlákssonar) var fyrst borið
upp til atkvæða og fellt. Álit meira hlutans (séra Fr. J.
Bergm., séra M. Skaftas., Á. Friðrikss. og B. Jónss.) var því
næst borið upp til atkvæða og samþykkt, svo hljóðanda:
„Nefndin í málinu um kristilega játning kirkjuþings-