Sameiningin - 01.07.1888, Blaðsíða 12
—7G—
évo vísaS til nofndar, sem þessir 5 menn voru kvaddir í:
FriSjón Friðriksson, Pálmi Hjálmarsson, Friðrik Jóliannes-
son, Stefán Sigurðsson og Jón Jónsson.
Fundi slitið kl. 5| e. m.
Eftir kl. 7 sama kvökl og til kl. 11 fóru fram opinber-
ar umrœður, sem öllum undantekningarlaust hafði verið boð-
ið að taka þátt í, og var umrœðuefnið þetta: Er kirkjan
með eða inóti frjáisri rannsókn ? Kirkjuþingið kaus Magn-
iís Pálsson til að stýra þeim umrœðum.
5. FUNDR, þriðjudaginn 2G. Júní, kl. 9 f. m.
Séra Stgr. þorlálcsson flutti bœn. — Allir á fundi.—Síð-
asti fundargjörningr lesinn og staðfestr.
Tekið fyrir málið: söfnuðirniríMinnesota. Eftir
nokkrar umrœður var samþykkt, að kjósa 3 manna nefnd,
til þess að semja ávarp frá kirkjuþinginu til þessara safnaða
og hinna annarra íslenzku safnaða og floklca, sem enn ])á
standa fyrir utan kirlcjufélagið. I þeirri nefnd voru: Jón
Blöndal, Jón Skanderbeg og séra Magnús Skaftasen.
Næst var tekið fyrir málið um sunnudagsskóla
og fermingar; var samþyklct, að vísa því til 5 manna
nefndar, og urðu í iienni: séra Jón Bjarnason, séra Stein-
grímr þorláksson, séra Magnús Skaftasen, Sigfús Bergmann
og Mawnús Pálsson.
Næsta mál var b i n d i n d i s m á 1 i ð; var samþykkt,
að setja í það 5 manna nefnd, og voru þessir nefndarm.:
séra Steingrímr þorlálcsson, Sigurðr J. Jóhannesson, Tómas
Asbjarnarson, Haraldr Pétrsson og Kristinn Olafsson.
þá komu til umrœðu g rundvallarlaga b r e y t i n g-
ar frá síðasta kirkjuþingi; var út af því máli sett 3
manna nefnd, og urðu í þeirri nefnd: Arni Friðriksson,
Vilhelm Pálsson og Sigfús Bergmann.
Næst á dagskrá var málið um minnisvarða yfir
séra Pál heitinn þorláksson. Nálega umrœðulaust var
því vísað til 3 manna nefndar, og þessir kvaddir í nefnd-
ina: séra Friðrik J. Bergmann, Magnús Pálsson og Stefán
Sigurðsson.
þá voru lagðar fram skýrslur um fólkstölu, fermdra og ó-
fermdra, í hinum ýmsu söfnuðum kirkjufélagsins, svto hljóðandi: