Fréttablaðið - 15.12.2010, Side 18
18 15. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
HALLDÓR
Kerfið græðir – fólkið blæðir
Borgarmál
Kjartan
Magnússon
borgarfulltrúi
Sjálfstæðis-
flokksins
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
VERTU MEÐ VIÐSKIPTIN
Í RASSVASANUM
m.visir.is
Fáðu Vísi í símannog iPad!
Meiri Vísir. Deildu Vísi með öðrum.
Þeir sem setja „like“
við Vísi á Facebook
geta unnið óvænta
vinninga í hverri viku.
Rannsókn
Ögmundur Jónasson, dómsmála- og
mannréttindaráðherra, hefur falið
ríkissaksóknara að kanna hvort banda-
rísk stjórnvöld hafi gerst brotleg við
íslensk lög með starfsemi öryggis-
sveitar við sendiráð Bandaríkjanna í
Reykjavík. Athyglisvert er að grund-
völlur ákvörðunarinnar er svör – eða
svaraleysi – starfsmanna sendiráðsins
við spurningum ríkislögreglustjóra.
Ögmundur var jú í þeim hópi
stjórnmálamanna sem gáfu
heldur lítið fyrir það sem lak
úr skjalahirslum sama
sendiráðs um daginn.
Nú er það sem þaðan
berst, eða berst ekki, svo
alvarlegs eðlis að ekki dugar minna en
rannsókn ríkissaksóknara.
Heimabrúkið
Litlar sem engar líkur eru á að eitthvað
vitrænt komi út úr slíkri rannsókn
og enn minni líkur á að málið hljóti
framhaldsmeðferð með ákærum eða
einhverju slíku. Allt ber þetta því keim
af kunnri sýndarmennsku stjórn-
málanna.
Alvöru
Sjálfstæðisflokkurinn er
augljóslega ekkert að
grínast þegar hann segist
ætla að taka sig í gegn eftir
hrunið. Sextán manna
framtíðarnefnd flokksins á meðal
annars að gera tillögu um hvernig
grasrótin getur betur náð eyrum
flokksforystunnar. Í henni er valinn
maður í hverju rúmi en líklegast er
mestur fengur í Gunnari I. Birgissyni.
Hann hraktist á sínum tíma úr bæjar-
stjórastólnum í Kópavogi og fljótlega
eftir að hafa náð kjöri í bæjarstjórn-
ina á ný sótti hann um vinnu
í Árborg. Nýjast er svo að
hann getur ekki unnið
með flokkssystkinum
sínum að fjárhagsáætlun.
Allt er þetta gott veganesti
þegar Sjálfstæðisflokkur-
inn horfir til framtíðar.
bjorn@frettabladid.is
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar var samþykkt í nótt eftir langan fund
borgarstjórnar. Með áætluninni hefur
meirihluti Besta flokksins og Samfylking-
arinnar ákveðið að leysa fjármál borgar-
innar með því að hækka verulega álögur
á borgarbúa. Þannig er útsvarsprósenta á
Reykvíkinga hækkuð úr 13,03% í 13,20%
og fasteignaskattar úr 0,214% í 0,225%.
Þá er lóðaskattur rúmlega tvöfaldaður.
Flestar gjaldskrár hjá Reykjavíkurborg
munu einnig hækka á næsta ári. Hóflegar
gjaldskrárhækkanir eru eðlilegar en
hjá meirihlutanum skortir yfirsýn og
samræmda stefnu enda er afar misjafnt
hvernig hækkanirnar nú koma við þjón-
ustunotendur. Skólamáltíðir hækka t.d.
um 10%, almennt sundgjald um 20%, vist-
unargjald á frístundaheimili um 20%, síð-
degishressing á frístundaheimili um 35%,
lengd viðvera á frístundaheimili um 68%,
almennt félagsstarf aldraðra um 45% og
heimilisþrif hjá öldruðum um 88%.
Áætlað er að fyrir barnafjölskyldu
í Reykjavík muni aukin útgjöld vegna
umræddra skatta- og gjaldskrárhækkana
nema 100-150 þúsund krónum á ári. Svo
miklar hækkanir þrengja að fjölskyldu-
fólki sem og að atvinnulífi í borginni
þegar einkaneysla dregst saman. Hærri
skattar og gjöld hins opinbera hægja
enn frekar á umsvifum í þjóðfélaginu og
seinkar þeim efnahagsbata, sem er for-
senda þess að þjóðin hristi af sér hlekki
kreppunnar.
Undir forystu Sjálfstæðisflokksins á
síðasta kjörtímabili voru skattar ekki
hækkaðir í Reykjavík og í ljósi efnahags-
ástandsins var gjaldskrám haldið óbreytt-
um um tveggja ára skeið, 2008-2010. Þess
í stað var sparað með góðum árangri í
borgarkerfinu í þágu reykvískra fjöl-
skyldna, sem hefðu illa þolað hærri skatta
og gjöld ofan á allt annað. Forgangsraðað
var í þágu fólksins en ekki kerfisins.
Þá ákvað borgarstjórn undir forystu
Sjálfstæðisflokksins að bregðast við erfið-
leikum í efnahagslífi með því að verja
grunnþjónustu borgarinnar, hækka ekki
gjaldskrár fyrir grunnþjónustu, hækka
ekki skatta á Reykvíkinga og verja störf
fastráðinna borgarstarfsmanna.
Undir stjórn Besta flokksins og Sam-
fylkingar hefur orðið skýr stefnubreyting.
Allir skattar hafa verið hækkaðir, flestar
gjaldskrár hafa hækkað verulega og grip-
ið hefur verið til fyrstu fjöldauppsagna í
sögu Reykjavíkurborgar.
K
rafan um að draga úr opinberum umsvifum hefur verið
sterk undanfarin ár og áratugi. Til að koma til móts við
þessa kröfu en viðhalda um leið grunnþjónustu sem hér
hefur verið til staðar og fæstir vilja sjá af þrátt fyrir
fyrrnefndu kröfuna hefur svo kölluðum þjónustusamn-
ingum fjölgað og er slíka samninga nú að finna á öllum skólastigum,
í heilbrigðisþjónustu og ýmiskonar annarri þjónustu við almenn-
ing.
Með þjónustusamningi verður
þjónusta sem áður var veitt
af opinberum aðilum (ríki eða
sveitarfélögum) að hluta eða öllu
leyti í höndum einkaframtaks.
Almenningur fær eftir sem áður
þjónustuna, kannski ekki alveg
ókeypis eða á sama lága verðinu
og ef hún er keypt beint af opin-
berum aðila en gjaldið er ekki hátt. Og hvers vegna var gjaldið ekki
hátt? Jú vegna þess að ríki og sveitarfélög borga eftir sem áður
sambærilega fjárhæð til þess aðila sem þjónustuna veitir og sam-
bærileg þjónusta kostar, sé hún veitt beint af opinberri stofnun.
Þetta lítur í sjálfu sér ekkert illa út og gengur vel í mörgum til-
vikum. Hægt er að velja setja barn sitt á leikskóla í rekstri sveitar-
félags eða á einkarekinn leikskóla, til dæmis ef fólk hefur sérstakan
áhuga á tilteknum áherslum í skólastarfi eða skólastefnu og fyrir
þetta greiða foreldrar eilítið meira en fyrir skólavist í leikskóla á
vegum sveitarfélagsins. Reyndar ber þess að geta að leikskólar á
vegum sveitarfélaga eru, eins og hinir einkareknu, eins margvís-
legir og þeir eru margir og vinna með mismunandi áherslum og
skólastefnu. Valmöguleikarnir eru því fyrir hendi innan opinbera
kerfisins.
Það sama á svo við um grunnskóla. Á höfuðborgarsvæðinu er
hægt að velja á milli hverfisskóla sem veita ókeypis þjónustu og
nokkurra einkaskóla og borga þá skólagjöld sem þó eru alls ekki
há. Fyrir sjö árum bættist svo við einkarekinn framhaldsskóli sem
upphaflega átti sérstaklega að þjóna bráðgerum ungmennum en
þeim gafst þar kostur á að ljúka stúdentsprófi á tveimur árum.
Kjarni málsins er þó alltaf sá að allir þessir svokölluðu einkaskól-
ar eru að stærstum hluta reknir af almannafé og ættu því að vera
undir nákvæmu eftirliti rétt eins og um væri að ræða opinberan
rekstur. Það er því verulega ámælisvert að fjármálaóreiða á borð
við þá sem viðgengist hefur í Menntaskólanum Hraðbraut skuli
hafa þrifist.
Ríkisendurskoðun hefur nú kallað eftir 141 þjónustusamningi
sem ráðuneytin hafa gert. Auðvitað er ekki ástæða til að ætla að í
ljós komi fleiri dæmi um slíka svikamyllu og raunin virðist vera
með Hraðbraut. Það er samt þarfaverk að fara yfir þessa samninga
og raunar ættu sveitarfélögin að fara að dæmi ríkisins og fara yfir
sína samninga. Þjónustusamningar sem ríki og sveitarfélög gera
verða að vera skýrir þannig að báðum aðilum sé ljóst hvaða þjón-
ustu á að veita og í hvaða umfangi, hvernig eftirliti sé háttað og hver
uppsagnarákvæði séu að hálfu beggja aðila (sbr. Árbótarmálið).
Við höfum ekki efni á því að missa tugi eða hundruð milljóna
í sjálftöku þeirra sem opinberir aðilar kaupa þjónustu af fyrir
almannafé vegna skorts á eftirliti eða samninga sem eru óskýrir.
Þarna þarf að taka til.
Einkaskólar eru í raun reknir af almannafé.
Skýrir samningar
og aukið eftirlit
SKOÐUN
Steinunn
Stefánsdóttir
steinunn@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871