Fréttablaðið - 15.12.2010, Síða 40
32 15. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
Tónlist ★★★
Aðventutónleikar Sinfóníunn-
ar
Verk eftir Bach, Händel, Mozart,
Corelli og fleiri.
Fyrir tveimur árum voru aðventu-
tónleikar Sinfóníunnar haldnir í
Langholtskirkju. Það var ánægju-
leg stund. Endurómunin í kirkj-
unni er fremur mikil og hún gaf
hefðbundinni barokktónlistinni
glans sem fór henni vel. Háskóla-
bíó er, eins og allir vita, mun verri
tónleikasalur. Barokktónlist hljóm-
ar ekkert sérlega vel þar. Slík tón-
list er rislítil í eðli sínu (a.m.k. ris-
minni en sinfóníurnar eftir Mahler
eða Sjostakóvitsj). Daufur hljóm-
burðurinn fletur hana út. Sér-
staklega ef maður situr aftarlega
eins og ég gerði á tónleikunum á
laugardaginn.
Ekki var við stjórnandann,
Nicholas Kraemer, að sakast.
Hann mótaði flutninginn af fag-
mennsku. Á boðstólum voru atriði
úr kantötu eftir Bach; úr Messíasi
og Vatnasvítu nr. 2 eftir Händel, og
líka smá Mozart. Einstaka hnökr-
ar voru heyranlegir hjá málmblás-
urunum, en í það heila var hljóm-
sveitin með sitt á hreinu.
Óvanalegt var að sjá Kraem-
er spila á sembal um leið og hann
stjórnaði. Þótt lítið heyrðist í
sembalnum á sautjánda bekk gat
ég ekki betur greint en að leikur
Kraemers væri pottþéttur.
Söngurinn kom hins vegar dálít-
ið misjafnlega út. James Gilchrist
hafði sterka rödd, og hún var fáguð
og nokkuð þurr, rétt eins og hjá
mörgum breskum tenórum. Hann
söng af öryggi og ríkulegri tilfinn-
ingu – en var fremur einsleitur.
Það var allt á svipuðum nótum hjá
honum, sem gerði túlkunina minna
og minna sannfærandi eftir því
sem á leið. Og í sópraninum, Kath-
erine Watson, heyrðist ekki nægi-
lega vel þar sem ég sat. Það var
eins og að reyna að hlusta á tónlist
með eyrnatappa.
Í hléinu var mér óvænt boðið að
fylgjast með seinni hluta dagskrár-
innar í hinu svokalla búri. Það er
lítið herbergi fyrir aftan áheyr-
endapallana þar sem RÚV stjórn-
ar upptöku og útsendingu tónleik-
anna. Mér voru afhent heyrnartól
og ég hlustaði á músíkina í þeim.
Hvílíkur munur! Upptakan var
óaðfinnanleg. Almennilega heyrð-
ist í söngkonunni, túlkun hennar
var blæbrigðarík og tilfinninga-
þrungin. Hún var fyllilega í anda
hvers verks. Þar á meðal var Ave
María eftir Sigvalda Kaldalóns.
Þótt íslenskunni hafi verið nokkuð
ábótavant var rétta stemningin til
staðar.
Hljómsveitarleikurinn hljómaði
líka einstaklega vel. Hver einasti
hljóðfæraleikari spilaði af glæsi-
mennsku. Einleikur Ásgeirs Stein-
grímssonar á trompet (í Jauchzet
Gott in allen Landen eftir Bach)
var snilld!
Einn náungi sagði við mig fyrir
nokkru að maður ætti að fá sér
heyrnartól með innbyggðu útvarpi.
Eins og þau sem iðnaðarmenn eru
stundum með. Og fara með þau á
sinfóníutónleika. Vera í Háskóla-
bíói og njóta stemningarinnar á
tónleikunum, en heyra tónlistina
í heyrnartólunum, í frábærum
gæðum útsendingarinnar. Ég held
að það sé nokkuð til í því. Jónas Sen
Niðurstaða: Yfirleitt fínn hljómsveit-
arleikur en söngurinn kom misjafn-
lega út.
Sinfónía í búri
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Miðvikudagur 15. desember 2010
➜ Tónleikar
20.00 Kór Bústaðakirkju heldur jóla-
tónleika undir yfirskriftinni Jólaljós í
kvöld. Sérstakir gestir kórsins verða Örn
Árnason og Ívar Helgason. Tónleikarnir
hefjast kl. 20 og eru haldnir í Bústaða-
kirkju. Aðgangseyrir er 2.500 krónur.
21.00 Hljómsveitin Örför kynnir nýtt
tónlistarefni á Hemma og Valda í kvöld
kl. 21.
21.00 Hljómsveitin The Third Sound
verður með síðbúna útgáfutónleika
á tónleikastaðnum Sódóma í kvöld.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur. Húsið
opnar kl. 21 og tónleikarnir klukkustund
síðar.
21.00 Jólatónleikar verða haldnir á
skemmtistaðnum Faktorý, Smiðjustíg 6.
Fram koma AMFJ, Arnljótur, Dj Andre,
Jóhann Eiríksson, Snorri Ásmundsson,
Stefán Finnbogi Pétursson, Stereo
Hypnosis, Ómar Stefánsson & Jafet
Melge og Mummi Visual. Aðgangseyrir
er 1500 krónur og hefjast tónleikarnir
kl. 21.
➜ Kvikmyndir
20.30 Kvikmynda-
klúbburinn Arnar-
hreiðrið efnir til bíó-
sýningar í kvöld í Bíó
Paradís. Kvikmyndin
ber nafnið Ghosts of
the Ciivil Dead og sér
Nick Cave um tónlist
og leik. Sýning hefst kl.
20.30.
➜ Dagskrá
21.00 Skemmtidagskráin Jólapopp fer
fram á Café Haítí, í
kvöld. Fram koma Dr.
Gunni, Einar Kára-
son og hljómsveitin
Prinspóló. Café Haítí
er staðsett við Gömlu
höfnina í Reykjavík
(nánar tiltekið Geirs-
götu 7b / Verbúð 2)
og hefst skemmtidag-
skráin Jólapopp kl. 21.
➜ Málþing
19.30 Skyggni frábært efnir til mál-
þings undir yfirskriftinni UMBROT
í Hugmyndahúsi háskólanna að
Grandagarði 2 í kvöld. Málþingið verður
tileinkað möguleikum borgarrýma og
hefst kl. 19.30.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Kammersveit Reykjavíkur kynnir
Bach-soninn Carl Philipp Emanu-
el á jólatónleikum sínum sunnu-
daginn næstkomandi.
Tónlist þessa afkastamikla
Bach-sonar er sjaldan leikin hér
á landi en þótt Johann Sebastian
sé sá Bach-feðga sem kemur upp
í huga nútímafólks þegar nafn-
ið Bach er nefnt var sonur hans
Carl Philipp Emanuel sá þekktari
af þeim feðgum langt fram eftir
nítjándu öldinni.
Carl Philipp Emanuel var einn
fjögurra sona Johanns Sebastians
sem sömdu tónlist en það höfðu
menn gert í Bach-fjölskyldunni
mann fram af manni.
Auk þess að njóta handleiðslu
föður síns naut Carl Philipp
Emanuel þess að eiga tónskáld-
ið Georg Friedrich Telemann að
guðföður.
Á efnisskránni eru tvær sinfóníur
Carls Philipps Emanuels fyrir
strengi, sembal, flautur, óbó, fagott
og horn. Einnig verða fluttir tveir
einleikskonsertar, Flautukonsert
í G-dúr þar sem einleikari er Mel-
korka Ólafsdóttir, og Sellókonsert
í A-dúr þar sem Margrét Árna-
dóttir fer með einleikshlutverkið.
Konsertmeistari Kammersveitar
Reykjavíkur er Una Sveinbjarn-
ardóttir, en spænski semballeik-
arinn Javier Núñes stjórnar frá
sembalnum.
Hefð er fyrir því að leika hátíð-
lega tónlist frá barokktímanum
á jólatónleikum Kammersveitar-
Reykjavíkur. Þá hafa ungir ein-
leikarar gjarnan fengið tæki-
færi til að koma fram á þessum
tónleikum.
Tónleikar Kammersveitarinnar
verða í Áskirkju sunnudaginn 19.
desember kl. 17. Miðasala er á
midi.is og við innganginn.
Verk Bach-sonar
á jólatónleikum
EINLEIKARARNIR Tveir ungir einleikarar koma fram á jólatónleikum Kammersveitar
Reykjavíkur, Margrét Árnadóttir sellóleikari og flautuleikarinn Melkorka Ólafsdóttir.
Jóladagatal Norræna hússins 1.-23. des. kl: 12.34
Menningarsjóður útvarpsstöðva auglýsir
Hlutverk Menningarsjóðs útvarpsstöðva er að veita styrki til eflingar innlendri dagskrárgerð fyrir hljóðvarp og sjónvarp,
þeirri er verða má til menningarauka og fræðslu, sbr. reglugerð um Menningarsjóð útvarpsstöðva dags. 11. febrúar
1986 með síðari breytingum.
Stjórn sjóðsins auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Þetta er lokaúthlutun sjóðsins og verður hann
lagður niður að henni lokinni.
Stjórn sjóðsins er skipuð af mennta- og menningarmálaráðuneytinu og annast úthlutun. Í henni sitja Laufey
Guðjónsdóttir, formaður, Lovísa Óladóttir og Þorbjörn Broddason en starfsmaður er Reynir Berg Þorvaldsson. Stefnt er
á að ákvarðanir um styrki liggi fyrir í lok febrúar 2011.
Í umsóknum skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram:
1. Nafn umsækjanda, kennitala og heimilisfang, ásamt upplýsingum um aðstandendur verkefnis
og samstarfsaðila og skriflegum staðfestingum allra aðila um þátttöku í verkefninu.
2. Handrit eða nákvæm lýsing verkefnis og greinargerð umsækjanda um verkefnið.
3. Fjárhæð styrks sem sótt er um.
4. Kostnaðar- og fjárstreymisáætlun.
5. Skriflegir samningar eða önnur staðfesting um fjármögnun eða fjármögnunaráætlun auk
tæmandi upplýsinga um aðra styrki sem sótt hefur verið um og/eða verkefnið hefur fengið.
6. Nákvæm áætlun um framvindu verkefnis og greinargerð um það til hvaða verkþátta sótt er
um styrk til.
7. Upplýsingar um alla gerða eða fyrirhugaða framleiðslusamninga og áætlun um tekjuskiptingu
eftir því sem við á.
8. Markaðs- og kynningaráætlun.
9. Upplýsingar um framleiðslufyrirtæki.
10. Yfirlýsing sjónvarps- eða útvarpsstöðvar um að fyrirhugað sé að taka dagskrárefni, sem sótt er
um styrk til, á dagskrá.
Upplýsingar um úthlutunarreglur, skilyrði og umsóknargögn má nálgast í gegnum netfangið menningarsjodur@
internet.is eða í síma 6636245.
Frestur til að skila inn umsóknum í sjóðinn hefur verið framlengdur til 7. janúar nk.
Umsóknum og öllum fylgigögnum ber að skila í þríriti til Menningarsjóðs útvarpsstöðva,
Hverfisgötu 54, 101 Reykjavík. Með umsókn skal skila þar til gerðum eyðublöðum sem fást
afhent á sama stað eða í gegnum netfangið menningarsjodur@internet.is.
MENNINGARSJÓÐUR ÚTVARPSSTÖÐVA
Hverfisgötu 54, 101 Reykjavík
Sími: 6636245
Netfang: menningarsjodur@internet.is