Fréttablaðið - 30.12.2010, Síða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Fimmtudagur
skoðun 16
30. desember 2010 FIMMTUDAGUR
1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Kate Middleton og Vilhjálmur Bretaprins opinberuðu trúlofun sína
um miðjan síðasta mánuð og á þeim skamma tíma sem liðinn er frá
trúlofuninni hefur Kate orðið að tískufyrirmynd. Konur keppast við að
komast yfir sams konar kjól og hún bar við trúlofunina, svo ekki sé nú
talað um að fá eins hring á fingur sér.
Katrín Atladóttir féll fyrir kjól frá Vivienne Westwood þegar hún leitaði sér að brúðarkjól:Mátaði ekki annan kjól
Katrín Atladóttir, forritari hjá CCP, mætir í brúðkaup á nýársdag í sínum eigin brúðarkjól. Hún spurði þó brúðgumann um leyfi. „Vinur minn er að fara að gifta sig og ég spurði sérstaklega hvort honum væri ekki sama þótt ég mætti í brúðarkjólnum mínum. Það var allt í lagi, enda er kjóllinn ekki beint hefðbundinn brúðarkjóll. Ég hlakka mikið til að nota hann aftur,“ segir Katrín en hún gifti sig sjálf í sumar. Hún féll fyrir kjólnum um leið og hún sá hann.„Þetta er Vivienne Westwood kjóll sem ég keypti mér í Kronkron. Þetta er eini kjóllinn sem ég mátaði, ég gekk bara inn í verslunina og sá hann strax, mátaði og borgaði og þar með var brúðarkjólamálið afgreitt. Ég keypti skóna líka í KronKron, en reyndar ekki í sömu ferð.“Katrín segist hafa gaman af því að klæða sig upp þegar rétta tilefnið gefst. Hversdags klæði hún sig í þægilegar flíkur.„Ég er svona „casual chick“ með smá hiphyfirbragði. Nánast öll fö iþSími 58
20%
afsláttur af öllum skóm og stígvélum frá Melvin & Hamilton
FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2010
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Heilsa
veðrið í dag
30. desember 2010
306. tölublað 10. árgangur
Fréttablaðið er nú með 187%
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18–49 ára.
Könnun Capacent í ágúst til október 2009 og 2010.
MORGUNBLAÐIÐ
20
09
29
,3%
74,7%
26%
20
10
20
09
71
,4% 20
10
Allt sem þú þarft...
FRÉTTABLAÐIÐ
meiri lestur en Morgunblaðið.
UMHVERFISMÁL Steingrímur Jóns-
son, bóndi á Efri-Engidal í Skutuls-
firði, óttast að áralöng reykmeng-
un frá sorpbrennslustöðinni Funa
hafi skaðað heilsu heimilisfólksins
á bænum. Hann óttast jafnframt
að þurfa að bregða búi vegna eitr-
unar í jarðvegi og á annað hundrað
ára fjölskyldusögu á jörðinni ljúki
þar með.
„Við óttumst um okkar heilsu
og læknirinn okkar er með þetta
á sinni könnu,“ segir Steingrímur.
„Við erum búin að drekka þessa
menguðu mjólk alla tíð og borða
kjöt af okkar skepnum. Svo höfum
við andað þessu að okkur en það
á auðvitað við um miklu fleiri en
okkur. Það eru fyrirtæki nær sorp-
brennslustöðinni en við.“
Um miðjan desember greind-
ust þrávirk aðskotaefni yfir leyfi-
legum mörkum í mjólkursýni frá
Efri-Engidal. Jörðin er í um kíló-
metra fjarlægð frá sorpbrennslu-
stöðinni. Af öryggisástæðum var
vinnsla mjólkur á bænum, og dreif-
ing afurða sem rekja mátti þangað,
stöðvuð að kröfu Matvælastofnun-
ar sem fer með málið.
„Þetta er mjög alvarlegt, en við
verðum að vona það besta,“ segir
Steingrímur. „Mér hefur aldrei
litist á nágrannann en þótt mig
hafi grunað að einhver mengun
hlyti að vera í reyknum, sem oft
fyllti dalinn, grunaði mig aldrei
að þetta væri svona alvarlegt. Það
er ómögulegt að vita hversu lengi
þessar gufur hafa verið svona eitr-
aðar. Ég hef líka áhyggjur af því
að þurfa að bregða búi því þung-
málmar setjast í jarðveg.“
Á vef Matvælastofnunar segir
að efnin sem um ræðir, díoxín og
díoxínlík PCB-efni, séu sérstakt
áhyggjuefni vegna áhrifa þeirra á
umhverfið og heilsu almennings.
Þau hafi ekki áhrif á heilsu fólks
samstundis, en geti valdið vanda-
málum ef þau berist í líkamann í
talsverðu magni yfir langt tíma-
bil. Þau brotna hægt niður í nátt-
úrunni og safnast þar af leiðandi
upp í fituvefjum manna og dýra.
Steingrímur hefur engar upp-
lýsingar um það hvernig honum
verður bættur skaðinn ef allt fer á
versta veg. Fyrst um sinn greiðir
Mjólkursamsalan á Ísafirði honum
fyrir þá mjólk sem hann hellir
niður. Á bænum eru sautján mjólk-
andi kýr og sjötíu kindur. Stein-
grímur útilokar ekki að bústofn
hans verði felldur, en bíður frek-
ari niðurstaðna úr sýnatökum frá
útlöndum sem skera úr um hversu
alvarleg eitrunin er.
svavar@frettabladid.is
Óttast um heilsuna
vegna sorpbrennslu
Bóndinn á Efri-Engidal óttast um framtíð sína og heilsu vegna eitrunar frá
sorpbrennslunni Funa á Ísafirði. Efni sem greindust í mjólk á bænum eru talin
sérstakt áhyggjuefni vegna áhrifa á umhverfi og heilsu almennings.
Katrín Atladóttir
Fer í Vivienne Westwood
brúðarkjólnum sínum í
brúðkaup á nýársdag.
allt 1
Aftur í rokkið
Friðrik Dór kemur fram
með hljómsveitinni Fendrix.
fólk 46
NETIÐ Um 265.420 Íslendingar eru skráðir á sam-
skiptasíðuna Facebook. Samkvæmt tölum Hagstof-
unnar frá 1. desember eru Íslendingar 318.236. Það
þýðir að 83% þjóðarinnar hafa skráð sig á Face-
book, en hlutfallið er með því hæsta í heiminum.
Notendafjöldi Facebook óx gríðarlega hratt á
árinu sem er að líða. Í sumar fór fjöldi notenda á
heimsvísu yfir 500 milljónir og í dag eru þeir rúm-
lega 580 milljónir. Íslenskir notendur voru um
150.000 í fyrra og því er ljóst að algjör sprenging
var í fjölda íslenskra notenda á árinu.
„Mér finnst þetta vera jákvæð þróun. En eins
og með allar breytingar felur hún í sér einhverja
aðlögun – tímabundna erfiðleika,“ segir Andrés
Jónsson almannatengill, en hann hefur fylgst náið
með þróun félagsmiðla á borð við Facebook.
Séu þessar tölur bornar saman við Norðurlöndin
kemur í ljós að hlutfall íslenskra notenda síðunnar
er talsvert hærra en gengur og gerist annars staðar
á Norðurlöndunum. Samkvæmt tölum vefsíðunnar
Socialbakers.com eru um 53% Norðmanna skráð á
síðuna, um 48% Dana og um 45% Svía. Þegar komið
er til Finnlands hrynur hlutfallið niður í 35%.
- afb / sjá síðu 46
Notkun landsmanna á vinsælasta samskiptavef heims nær ótrúlegum hæðum:
83% Íslendinga á Facebook
Gönguhópurinn eitt
fjall á viku
Nær markmiði sínu á
gamlársdag.
tímamót 28
NOKKUÐ MILT Suðvestan 5-10
m/s og skýjað en 8-15 og dálítil
úrkoma NV-til. Hlýnar í veðri.
VEÐUR 4
3
6
1
34
VEÐUR Hitastig verður undir
frostmarki um allt land þegar
nýja árið gengur í garð á áramót-
unum. Veður verður þó víðast
hvar bjart þannig að flugeldar
ættu að sjást vel.
„Það kólnar svolítið á gamlárs-
dag þegar snýst í norðanátt. Á
móti kemur að það birtir til hér
syðra en kann að snjóa aðeins
fyrir norðan,“ segir Þorsteinn
V. Jónsson, veðurfræðingur hjá
Veður stofunni. Hann segir að
kalt verði í lofti, frost þegar líða
fari á kvöldið en snjór á jörðu
verði lítill. - mþl
Flugeldar ættu að sjást vel:
Kalt og bjart á
áramótunum
Áttunda tap Liverpool
Liverpool tapaði
fyrir botnliði ensku
úrvalsdeildarinnar á
heimavelli í gær.
sport 40
LÍFEYRISSJÓÐIR Kristni Erni
Jóhannessyni, framkvæmda-
stjóra VR, var sagt upp á fundi
félagsins í gær-
kvöldi. Hann
mun gegna for-
mannsstöðu VR
áfram.
Boðað var til
fundarins að
kröfu Ragnars
Þórs Ingólfs-
sonar, Bjarka
Steingrímsson-
ar, Birgis Más
Guðmundsson-
ar, Guðrúnar Jóhönnu Ólafsdótt-
ur og Hildar Mósesdóttur sem
vildu ræða málefni formannins.
Samkvæmt heimildum Vísis.is
var boðað til fundarins með það
fyrir augum að bera fram van-
trausttillögu á Kristin.
Formaður VR sækir umboð sitt
til aðalfundar og því er ekki hægt
að setja hann af á stjórnarfundi.
Stjórn ræður hins vegar fram-
kvæmdastjóra. - jab
Framkvæmdastjóri VR rekinn:
Situr sem fastast
sem formaður
KRISTINN ÖRN
JÓHANNESSON
SKÓLAMÁL Ólafur H. Johnson,
skólastjóri Menntaskólans
Hraðbrautar, segir að pólitísk
aðför sé gerð að skólanum. Í
ávarpi á vefnum YouTube segir
Ólafur að sú staðreynd að skól-
inn sé einkarekinn fari mjög
fyrir brjóstið
á núverandi
menntamála-
yfirvöldum.
Skýrsla
menntamála-
nefndar um
hraðbraut ein-
kennist af því
að niðurstaðan
hafi verið fyrir
fram ákveðin.
Málsvörn Ólafs lýtur meðal
annars að því að ekkert hinna
umdeildu mála sem nefnd hafa
verið í sambandi við skólann
gefi tilefni til að þjónustusamn-
ingi sé sagt upp.
- þj
Skólastjóri ver Hraðbraut:
Pólitísk aðför
að skólanum
ÓLAFUR HAUKUR
JOHNSON
SUNGIÐ HÁSTÖFUM VIÐ ÁRAMÓT Húsfyllir var á tónleikum Jónsa og hljómsveitar hans
í Laugardalshöll í gærkvöldi. Tónleikarnir voru þeir síðustu í heimstúr sem hófst í febrúar en sólóplata Jónsa, Go,
kom út í apríl. Hljómsveitin hefur á árinu haldið 99 tónleika í fjórum heimsálfum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI