Fréttablaðið - 30.12.2010, Qupperneq 6
6 30. desember 2010 FIMMTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING
Hver mun yfirgefa ríkisstjórnina í
næstu sameiningu ráðuneyta?
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra mun í dag kynna tvö ný ráðu-
neyti í ríkisstjórn sinni.
Um áramót verður til annars
vegar nýtt innanríkisráðuneyti, með
sameiningu dómsmála- og mann-
réttindaráðuneytis og samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytis, og hins
vegar nýtt velferðarráðuneyti með
sameiningu félags- og tryggingar-
málaráðuneytis og heilbrigðisráðu-
neytis.
Þessi breyting hefur legið lengi
í loftinu og þykir ljóst að Ögmund-
ur Jónasson mun verða innanríkis-
ráðherra og Guðbjartur Hannes-
son verður velferðarráðherra. Hins
vegar er frekari breytinga að vænta
í vor þar sem fyrirhugað er að sam-
eina sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðuneyti og iðnaðarráðuneyti í
atvinnuvegaráðuneyti. Á sama tíma
verður umhverfisráðuneyti breytt í
umhverfis- og auðlindaráðuneyti.
Meirihluti allsherjarnefndar
Alþingis ákvað í haust, þegar sam-
einingar ráðuneyta voru ræddar, að
bíða með tvær síðastnefndu breyt-
ingarnar þar sem þörf væri á lengra
samráðsferli hvað varðar atvinnu-
vegaráðuneytið.
Þó að enn sé óvíst hverjir muni
stýra þeim ráðuneytum er ljóst að í
það minnsta einn af núverandi ráð-
herrum mun víkja úr stjórninni.
Nema til komi meiriháttar upp-
stokkun í stjórnarliðinu verða það
þau Jón Bjarnason sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra, Svandís
Svavarsdóttir umhverfisráðherra
og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráð-
herra sem koma til greina.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðins hafa stjórnarflokkarnir
gert með sér samkomulag um að
Samfylkingin fái umhverfis- og
auðlindaráðuneyti en Vinstri græn
atvinnuvegaráðuneytið. Verði það
raunin er Samfylkingarkonan
Katrín viss um að halda ráðherra-
stól og valið mun því standa á milli
Jóns og Svandísar, sem bæði í eru í
Vinstri grænum.
Enn eina vídd má þá finna í þess-
um efnum og það er kynjahlutfall í
hópi ráðherra. Þegar ríkisstjórnin
var skipuð í núverandi mynd, með
sex körlum og fjórum konum, sagð-
ist forsætisráðherra vonast til þess
að sú breyting á ráðuneytum sem
hér er til umfjöllunar myndi leið-
rétta kynjaskekkju. Verði kvenráð-
herra tekinn út úr stjórninni mun
hins vegar halla enn frekar á konur
og er það á skjön við gefin fyrirheit.
Samkvæmt þeim rökum er Svandís
í betri stöðu en Jón til að halda ráð-
herrastól nema til komi frekari upp-
stokkun í ráðherraskipan.
thorgils@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Þriggja ára lægð á íbúða-
markaði virðist vera að ljúka, segir í
skrifum Greiningar Íslandsbanka.
Lækki íbúðaverð ekki meira hefur
íbúðaverð lækkað um 15 prósent að
nafnvirði og tæp 40 prósent að raun-
virði í kreppunni sem ríkt hefur á
íbúðamarkaði frá ársbyrjun 2008,
samkvæmt útreikningum bankans.
„Allar vísbendingar benda nú í þá
átt að botninum sé náð. Verðhækk-
anir hafa tekið við af lækkunum á
íbúðamarkaði, veltan er að aukast
og áhugi á íbúðakaupum virðist vera
að glæðast á ný,“ segir í umfjöllun
Greiningar.
Fram kemur að velta á íbúðamark-
aði hafi aukist á árinu, en samtals
hafi rúmlega 4.600 kaupsamningum
verið þinglýst á landinu öllu, sem sé
fjórðungsaukning frá fyrra ári.
Þá bendir Greining Íslandsbanka
á að samkvæmt nýbirtri stórkaupa-
vísitölu Gallup virðist áhugi á hús-
næðiskaupum vera að aukast. Vísi-
talan sé þó enn í grennd við sögulegt
lágmark. Hún er sögð hafa verið
hæst sumarið 2007, 18,2 stig, en í
lægstu lægðum í mars í fyrra, 3,8
stig. „Þrátt fyrir að vísitalan sé nú
að hækka telur meirihluti aðspurðra
enn mjög ólíklegt að þeir muni kaupa
hús eða íbúð á næstu sex mánuðum.
Þannig töldu 82 prósent aðspurðra
það mjög eða frekar ólíklegt en
einungis tæplega fimm prósent
aðspurðra telja íbúðar kaup á næstu
sex mánuðum frekar eða mjög lík-
leg.“ - óká
SÉÐ YFIR BREIÐHOLT Þrátt fyrir merki um
að botni sé náð á íbúðamarkaði telja
bara tæp fimm prósent í könnun Gallup
líklegt að þau festi kaup á íbúð á næsta
hálfa árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Allt bendir til að botninum sé náð á íbúðamarkaðnum:
Lækkun raunverðs frá hruni 40%
VIÐSKIPTI Stjórn Icelandair hefur
ákveðið að samþykkja áskriftir
fyrir 1.059.000.000 nýrra hluta
sem boðnir voru út í almennu
hlutafjárútboði sem lauk 23.
desember. Alls bárust 852 áskrift-
ir fyrir samtals 2.855.633.620
bréf, sem er næstum þrefalt það
magn sem í boði var.
Hlutum verður útdeilt til hlut-
hafa í samræmi við lög um hluta-
félög. Allar áskriftir starfsmanna
voru samþykktar og áskriftir frá
almenningi allt að 200.000 hlut-
um einnig. Áskriftum umfram
200.000 hluti verður útdeilt hlut-
fallslega til viðeigandi aðila. - mþl
Hlutafjárútboð hjá Icelandair:
Eftirspurn eftir
hlutum mikil
ICELANDAIR GROUP Stjórn og stjórn-
endur fyrirtækisins eru hæstánægð með
útboðið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarstjórn
Hveragerðis segir fyrirhugaða
vegatolla á Suðurlandsvegi algjör-
lega óásættanlega.
Í ályktun bæjarstjórnar segir:
„Hvergerðingur sem ekur hvern
virkan dag til vinnu eða skóla á
höfuðborgarsvæðinu þyrfti að
greiða 140 þúsund krónur á ári í
veggjöld. Áformin snerti einnig
með beinum hætti fjölda stórra
fyrir tækja sem daglega sjái til
þess að nauðsynjar berist inn
á höfuðborgarsvæðið. Að reisa
múra með þessum hætti umhverf-
is stærstu byggðarlög landsins er
andstætt því samfélagi sem við
viljum byggja upp þar sem ríkja
ættu hindrunarlausar og góðar
samgöngur milli byggðarlaga.“ - gar
Hvergerðingar mótmæla:
Veggjald vegur
að lífsafkomu
KAMBAR Suðurlandsvegur er lífæð
Hvergerðinga.
Ætlar þú að kaupa flugelda
fyrir áramótin?
Já 42,0%
Nei 58,0%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á að skera niður í menntamál-
um?
Segðu skoðun þína á visir.is
VIÐSKIPTI Nýstofnuðum fyrir-
tækjum í landinu hefur fækkað
um meira en helming frá
góðæris árinu 2007. Samlags- og
sameignar félögum hefur hins
vegar fjölgað mikið á árinu
vegna breytinga á skattkerfinu.
Aðeins 1.532 hlutafélög voru
stofnuð í ár, en nánast öll þeirra
eru einkahlutafélög. Það er tals-
verð fækkun frá síðustu tveim
árum, en bæði 2008 og 2009 voru
stofnuð fleiri en 2.500 félög.
Munurinn er sláandi ef litið er til
góðærisársins 2007, en þá voru
fleiri en 3.700 fyrirtæki skráð í
hlutafélagaskrá. Samdrátturinn
nemur því tæplega 60 prósentum
á þremur árum. - hh
Samdráttur í viðskiptum:
Færri fyrirtæki
eru stofnuð
Kynjahlutfall veikir
stöðu Jóns Bjarnasonar
Þrír ráðherrar eru um tvo stóla eftir fyrirhugaða sameiningu ráðuneyta í vor.
Verði jöfnun kynjahlutfalls í ríkisstjórn sett í forgang mun staða Jóns Bjarna-
sonar veikjast nema til komi umfangsmeiri uppstokkun í stjórninni.
FÓLK „Það er ekki mikið í gangi á nýársdag.
Ef maður vill reyna á sig á fyrsta degi
ársins er um að gera að fara í sjósund,“
segir Árni Jónsson, framkvæmdastjóri
Ylstrandar innar, sem stendur fyrir árlegu
sjósundi í Nauthólsvík á nýársdag.
Árni segir sjósund njóta vaxandi vin-
sælda. Fyrir fimm árum voru þeir sem
þreyttu nýárssund í kringum fimmtíu. Frá
bankahruni hefur þeim fjölgað gríðarlega.
Í hittifyrra, 1. janúar 2008, skelltu 150
manns sér í sjóinn og höfðu þeir þá aldrei
verið fleiri. Metið var slegið rækilega í
fyrra en þá skráðu 330 sundkappar sig
til leiks. Til samanburðar synda um 500
manns í sjónum í viku hverri. Árni segir
straum sundfólks hafa verið stöðugan í og
úr sjónum í fyrra og býst allt eins við að
þátttakendur verði fleiri í ár.
Sjórinn við Nauthólsvík hefur verið
kaldasta móti síðustu daga. Um hádegi
í gær var hann 0,6 gráður og gæti verið
við frostmark um hádegisbil á fyrsta degi
komandi árs.
Opið verður í sjósund í Nauthólsvík
á milli klukkan 11 og 14. Aðgangur og
aðstaða er ókeypis og geta þeir sem skella
sér í sjóinn farið í heitan pott að því loknu
og gætt sér á ýmsu góðgæti, svo sem kakó
og smákökum. - jab
NÝARSSUND Í FYRRA 330 manns skelltu sér í sjóinn í Naut-
hólsvík í fyrra en þá var metþátttaka. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Metþátttaka hefur verið í nýárssundi í Nauthólsvík eftir að bankarnir fóru í þrot:
Býst við tæplega fjögur hundruð manns
Þrír ráðherrar – tveir stólar
Fyrirhuguð sameining sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis við iðnaðarráðuneyti hefur í
för með sér fækkun um einn ráðherra í ríkisstjórninni. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
hafa stjórnarflokkarnir gert með sér samkomulag um að hið nýja atvinnuvegaráðuneyti
muni falla VG í skaut en Samfylking fái auðlinda- og umhverfisráðuneyti. Þá geta fyrirheit
forsætisráðherra um jöfnun kynjahlutfalls í ríkisstjórninni flækt málið enn frekar.
? ?
Atvinnuvega-
ráðuneyti (VG?)
Auðlinda- og
umhverfisráðuneyti (S?)
STJÓRNARRÁÐ ÍSLANDS Óvíst er hver
mun víkja úr ríkisstjórninni þegar ráðu-
neyti verða sameinuð í vor.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KJÖRKASSINN
KAUPTHING MANAGER SELECTION
Société d’Investissement à Capital Variable
Registered office: 35a, avenue J.F. Kennedy, L-1855 Luxembourg
RC Luxembourg B 72.942
NOTICE TO THE SHAREHOLDERS
The Board of Directors of Kaupthing Manager Selection has decided to appoint Banque de Luxembourg as
Domiciliary Agent of the Company.
Effective from 1st January 2011, or as soon as reasonably practicable thereafter, Banque de Luxembourg,
Société Anonyme will replace Banque Havilland S.A. as Domiciliary Agent of the Company.
On the same date, the address of the Company's registered office will change from presently 35a, avenue J.F. Kennedy,
L-1855 Luxembourg to 14, boulevard Royal, L-2449 Luxembourg.
The updated prospectuses dated January 2011 shall be available from the registered office of the SICAV and at
the following paying agent Arion banki hf., Borgartúni 19,IS- 105 Reykjavík
Luxembourg, 30th December 2010.
on behalf of the Board of Directors
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði
á 120 stöðum um land allt.
Nánari upplýsingar á
visir.is/dreifing
VIÐSKIPTI Fjárfestingarsjóður-
inn Frumtak hefur fest kaup á
hlut í fyrirtækinu PM Endur-
vinnsla ehf. Félagið einbeitir
sér að móttöku plastúrgangs til
endurvinnslu en framleiðslan er
síðan seld innanlands og erlendis.
Félagið hefur reist verksmiðju í
Gufunesi í Reykjavík en það hefur
framleitt endurunnið plast undan-
farin ár.
Frumtak er samlagssjóður í
eigu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífs-
ins, sex af stærstu lífeyrissjóðum
landsins og þriggja banka. Hann
fjárfestir í nýsköpunar- og sprota-
fyrirtækjum sem þykja vænleg til
vaxtar og útrásar. - mþl
Endurvinnur plastúrgang:
Frumtak fjár-
festir í PM
Endurvinnslu