Fréttablaðið - 02.11.2010, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 2. nóvember 2010 13
HEILBRIGÐISMÁL Nettósparnaður
vegna niðurskurðar á Heilbrigðis-
stofnun Vestfjarða yrði um 28 millj-
ónir króna, samkvæmt skýrslu sem
unnin var fyrir hönd grasrótar-
samtakanna Heimavarnarliðsins.
Skýrslan var unnin af Dóru Hlín
Gísladóttur, verkfræðingi og tals-
konu Heimavarnarliðsins, og Kristni
Hermannssyni hagfræðingi.
Heilbrigðisráðuneytið hefur
skýrsluna undir höndum og hefur
Dóra Hlín nú verið boðuð á fund í
ráðuneytinu í dag.
„Þetta verður fræðslufundur
og ég var beðin um að flytja þar
erindi um skýrsluna,“ segir Dóra
Hlín. „Það ríkir þarna gagnkvæm-
ur skilningur.“
Framkvæmdastjórn Heilbrigðis-
stofnunar Vestfjarða hefur sett
saman sparnaðartillögur sem ná
yfir þessar 28 milljónir sem eiga að
sparast með áætluðum niðurskurði.
Þröstur Óskarsson framkvæmda-
stjóri segir að
tillögurnar verði
gerðar opinberar
á næstunni. Þær
séu nú á borði
ráðuneytisins.
Samkvæmt
frumvarpi til
fjárlaga 2011
verða fjárheim-
ildir Heilbrigðis-
stofnunar Vest-
fjarða skornar niður um 185
milljónir króna, sem jafngildir rúm-
lega 20 prósenta samdrætti sé miðað
við árið 2009. - sv
PIA KJAERSGAARD Danski þjóðarflokk-
urinn er yst til hægri í dönskum stjórn-
málum og ver minnihlutastjórn Lars
Løkke Rasmussen forsætisráðherra falli.
DANMÖRK Pia Kjaersgaard, leið-
togi danska þjóðarflokksins,
vill að lokað verði fyrir arabísk-
ar sjónvarpsútsendingar í Dan-
mörku. Hún segir sjónvarps-
stöðvar á borð við fréttastöðina
Al-Jazeera bera fram áróður
gegn Vesturlöndum og standa í
vegi fyrir því að múslimar í Dan-
mörku aðlagist samfélaginu.
Tillaga Kjaersgaard hefur sætt
gagnrýni frá öðrum stjórnmála-
flokkum, sem segja hana stríða
gegn málfrelsi. Stjórn sjónvarps-
mála í Danmörku hefur þar að
auki sagt að slík aðgerð sé ekki á
sínu forræði þar sem stöðvarnar
sendi ekki út frá Danmörku. - mþl
Danski þjóðarflokkurinn:
Vill banna ar-
abískar stöðvar
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjavíkur
sýknaði í gær ríkið af kröfu Bjarka
H. Diego, fyrrverandi framkvæmda-
stjóra hjá Kaupþingi. Bjarki höfðaði
mál gegn Ríkisskattstjóra og krafð-
ist þess að úrskurður hans um skatt-
álagningu á söluréttarsamningum af
hlutabréfum í Kaupþingi yrði ógilt-
ur. Samningana gerði Bjarki þegar
hann starfaði hjá Kaupþingi.
Bjarki fullyrðir að samningar sem
hann gerði um kaup á hlutabréfum
í bankanum séu í grundvallaratrið-
um ólíkir kaupréttarsamningum.
Hann vísaði meðal annars til þess að
stjórnendur bankans hefðu ætlast til
að bréfin yrðu í hans eigu á meðan
hann væri við störf hjá bankanum.
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrver-
andi forstjóri Kaupþings, bar vitni í
málinu í gegnum síma frá Lúxem-
borg. Hreiðar tók undir orð Bjarka
um að ekki hafi verið ætlast til þess
að hann, eða aðrir starfsmenn Kaup-
þings sem gerðu svipaða samninga,
myndu selja bréfin.
Bjarki sagði að næði úrskurður
Ríkisskattstjóra um endurákvörð-
un á skatti upp á 100 milljónir króna
fram að ganga, sem og ákvörðun
slitastjórnar Kaupþings um riftun á
niðurfellingu persónulegra ábyrgða,
yrði hann gjaldþrota. Enginn maður
réði við þessar skuldbindingar. Mál-
inu verður áfrýjað til Hæstaréttar.
- vg
Bjarka H. Diego gert að greiða skatt af hlutabréfakaupum í Kaupþingi:
Ríkið sýknað af kröfu Kaupþingsstjóra
Ný skýrsla vegna niðurskurðar á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða:
Kynnir skýrsluna fyrir ráðuneyti
DÓRA HLÍN
GÍSLADÓTTIR
Milljónir eiga
að sparast með
áætluðum niður-
skurði.
28
islandsbanki@islandsbanki.is
www.islandsbanki.is
Sími 440 4000
Safnast þegar saman kemur
„Næst ætla ég ekki
að borga fyrir fríið
eftir að við komum heim“
Það er ekki bara góð tilfinning að eiga
fyrir því sem maður kaupir – það er líka
ódýrara að safna og eiga fyrir hlutunum
en að fá lánað fyrir þeim.
Með sparnaði í áskrift getur þú sett þér
markmið, lagt fyrir í hverjum mánuði,
safnað vöxtum og átt fyrir því sem þig
langar að gera.
Fyrir hverju langar þig að safna með
sparnaði í áskrift?
Byrjaðu að spara á islandsbanki.is
VÍSINDI Áfengi er skaðlegra en
heróín og krakk. Þetta kemur
fram í nýrri rannsókn sem birt-
ist í hinu virta læknatímariti
The Lancet í gær, en þar ber
hópur vísindamanna saman áhrif
hinna ýmsu tegunda vímugjafa
á neytandann sem og samfélagið
í heild.
Samkvæmt rannsókninni eru
neikvæð áhrif áfengisneyslu á
samfélagið mun meiri en annarra
vímugjafa.
Í niðurstöðum könnunarinnar
er kallað eftir því að flokkun
efna verði endurskoðuð og mun
meiri kraftur settur í aðgerðir til
að sporna við áfengisdrykkju. - þj
Rannsókn á vímugjöfum:
Áfengi skaðar
meira en heróín
SKAÐVALDUR Ný rannsókn segir áfengi
skaðlegasta vímugjafann.