Fréttablaðið - 02.11.2010, Side 24
2. NÓVEMBER 2010 ÞRIÐJUDAGUR● fréttablaðið ● jólahlaðborð
Tempura-síld
með ananas-
og chili-salsa
frá Ívari Þórðar-
syni á Lækjarbrekku
fyrir einn
4 bitar síld
tempura-duft (fæst í litlum pakkningum í Asíu-
búðum)
hveiti
Setjið tempura-duft í skál og hellið ísköldu vatni út í
þar til það er orðið vöffluþykkt. Veltið síldinni upp úr
hveiti, setjið síðan í deigið og djúpsteikið.
Ananas- og chili-salsa
1 sneið ferskur ananas
¼ stk. chili
1/6 búnt graslaukur
1 stk. vorlaukur
½ stk. appelsína
½ stk. límóna
1 msk. ólífuolía
1 msk. sérríedik
Saxið allt mjög smátt. Bætið olíu og ediki út í.
Síld í skrautlegu
JÓLASKARTI
Síldarsalat með rauðbeðum er einn a
Uppskriftin að jólasinnepssíld Restaurant Reykjavík er gamalt fjölskylduleyndarmál Vals Magnús-
sonar veitingamanns. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Tempura-síld með ananas- og chili-salsa er óvenjulegt síldarsmakk frá Lækjarbre
Jólasíld fjölskyldunnar
frá Val Magnússyni á Restaurant Reykjavík
400 g síld
150 g majónes
200 g sýrður rjómi
4 msk. sætt sinnep
2 msk. Dijon-sinnep
1/3 tsk. cayenne-pipar
2 msk. hunang
½ msk. sinnepskorn
Skerið síldina í bita. Hrærið saman majónesi, sýrðum rjóma,
sinnepi, cayenne-pipar, hunangi og sinnepskornum. Blandið svo síldarbitum varlega saman við.
Síldarsalat með rauðbeðum
frá Lukasz Tomasz Wójcikiewicz á Fjöru
1 kg kryddsíld
O,5 kg rauðbeður
1 meðalstór rauðlaukur
1+ kg majónes (fer eftir smekk)
salt og pipar
safi úr einni sítrónu
Skerið síldarflök í bita. Skerið rauðbeð
inga. Hakkið lauk í teninga. Blandið
við majónes. Bragðbætið með sítrón
og pipar eftir smekk.
● Eitt af hnossgætum jólahlaðborða er síldarréttir í óvæntum sem
gamalkunnum búningi. Matreiðslumeistarar Lækjarbrekku, Rest-
aurant Reykjavík og Fjörukráarinnar gefa lesendum af örlæti sínu og
matarást lystilega ljúffengar síldarupplifanir sem sumar eru gamal-
gróin fjölskylduleyndarmál.
● MALT OG APPELSÍN Á Íslandi er rík hefð
fyrir því að blanda saman malti og appelsín og
bera fram einkum í kringum jólin. Talið er að
menn hafi byrjað á að blanda malt með gos-
drykkjum í kringum 1940, til að drýgja maltið
sem var dýr drykkur. Ýmsir drykkir voru not-
aðir þar sem Egils appelsín í sinni núverandi
mynd fékkst ekki fyrr en um 1955. Það féll
vel í kramið og var sá siður orðinn nokkuð al-
gengur um 1960 og hefur átt útbreiddum
vinsældum að fagna hér á landi allar götur
síðan. Heimild: visindavefur.is
● HOLLUSTAN FYRST Jólahlaðborðin eru freistingin dúki klædd
en fyrir þá sem hugsa um hollustuna er sniðugt að skanna hvað er í boði
á hlaðborðinu áður en tekið er til við að raða á diskinn. Byrjið á því að
velja það sem hollara er því þá er minna pláss á diskinum fyrir óhollust-
una. Þá er hægt að borða eftirréttina með tandurhreinni samvisku.
JÓLAHLAÐBORÐ
HEIM Í HÚS EÐA Í VEISLUSAL
Upplýsingar í síma 553 7737 og 553 6737
mulakaffi@mulakaffi.is / www.mulakaffi.is
NÚ HÖLDUM VIÐ GLEÐILEG JÓL!
A
N
T
O
N
&
B
E
R
G
U
R
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði
á 90 stöðum um land allt. Nánari
upplýsingar á visir.is/dreifing
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt
á Vísi eða fengið sendan daglegan
tölvupóst með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU