Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.10.1906, Qupperneq 17

Sameiningin - 01.10.1906, Qupperneq 17
241 í ísafoldarsöfnuði sýndi mér ekkert annað en góðsemi, og mér ber að þakka þvi innilega. Mér varð vel til fólksins í báðum þessurn byggðum, og eg bið guð að leiða það allt á sínum vegum; og þó eg sjái það aldrei aftr, þá vona eg, að heitir kærleiksstraumar megi renna okkar á milli. í byrjun Ágústmánaðar hélt eg til Winnipeg og dvaldi þar fáa daga, áðr en eg fór þaðan til Pine Valley, Man. Tvær op- inberar guðsþjónustur hafði eg méð fólk'i þar, skirði þrjú börn oig hélt tvær likrœður, aðra á íslenzku yfir konu Mr. Kristjáns Eyford, hina á ensku, yfir sœnskri konu. Báðar þær konur dóu síðastliðinn vetr. En af því enginu prestr var viðstaddr við út- farir þeirra, var eg beðinn að tala yfir le'iðum þeirra. Frá beztu vinum kvenna þessara hefi eg heyrt, að þær hafi lifað og dáið sem guðs börn í trúnni á frelsarann, Jesúm Krist. Það er blessunarríkt að lifa í samfélagi við hann og deyja til að öðl- ast dýrðina miklu, sem hann hefir oss búna. Lá.tum oss i drottins nafni taka við því mikla hnossi. Oss er boðið það á hverjum degi. Framkoma fólksins við mig i Pine Valley fFurudalssöfn- uðij var hin lofsverðasta, en tíminn var svo naumr, áð egkynnt- ist ekki mörgum. Eg gisti hjá hr. Pétri Pálmasyni og ko.uf hans. Þau hjón eru einstaklega vel kristin, skynsöm, skemmti- leg og væn, og sýndu mér ekkert nema blíðu. Það er inndælt að vera hjá þeim, sem trúin og kærleikrinn er ráðandi hjá í öllu. Snöggvast skrapp eg su'ðr fyrir „linu“ — til Roseau í Minnesota, og prédikaði þar sunnudaginn 19. Ágúst. Undan- tckningarlaust allir landar í þeirri byggð komu til guðsþjón- ustunnar. Þar skirði eg tvö börn. Eg gisti hjá hr. Guðvaldú. Jackson þá fáu daga, sem eg var þar, og kynntist eg þar stórri og myndarlegri fjölskyklu. Heimilið er mjög smekklegt; og fólkið allt til fyrirmyndar í mannfélagi.iu. Dvöl mín þar var hi:n skemmtilegasta. Seinustu tvo sunnudagana, sem eg var i þjónustu kirkju- féiagsins, prédikaði eg eftir ósk séra Friðriks Bergmanns í; kirkju Tjaldbúðarsafnaðar i Winnipeg, i fjarveru hans. Svo fel eg guði á hendr áraugritin af þessu starfi mínu. í veikleika hefi eg leitazt við að prédika fagnaðarerindið um Jesúm Krist eins vel og eg hefi getað. Eg hefi fundið til þess iðulega, að eg er enn þá ungr og mig skortir reynslu og þekk- ing; en hjarta mitt hefir verið einlægt, og eg hefi elskað sál- irnar, sem eg hefi talað við; og heitasta bœn mín er sú, að þær

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.