Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1906, Blaðsíða 30

Sameiningin - 01.10.1906, Blaðsíða 30
254 „Hvað þá?“—spurði gamli maðurinn, og horfði n'iður. „Læ’s’einn. Elskarðu Jesú?“ „Ó! þú átt við lœrisvein. Já, litla stúlka mín, eg heyrí drotni Jesú til“—sagði Mr. Burton. „Viltu fá að clrekka vatn?“ „Já, það vil eg sannarlega, góð’in mín.“ „Þá skal eg færa þér það.“ Og Dísa litla var óðar horfin inn á milli runnanna; en garnli maðurinn, sem lúinn var orðinn, settist niður í grasið við veginn og beið. Hann var farinn að halcla, að hann rnyndi elcki sjá hana aítur, þegar hún kom með fallega postulíns-bollann sinn fullan af köldu vatni. Þá kom afi hennar líka með krukkuna fulla af vatni, svo að þyrsti ferðamaðurinn fékk alt Það vatn„ sem hann þurfti til að svala sér á. Afi hennar bauð honum héirn í húsið að borða. Þá var Brúnn aktýgjaður og honum beitt fyrir vagn. Og afi sagðist hafa lofað Dísu, að hún skyldi fá að aka með sér; og þau gætu eins ekið til Woodbury eins og nokkuð annað. Öll fóru þau þá upp í vagninn. Og garnli Brúnn hélt á stað. með Þau. Veg- urinn var sléttur og véðrið gott og viðræðurnar ánægjulegar, svo að þau voru komin t'il Woodbury áður en þau vissu af. Þar skildu þau v'ið Mr. Burton. Hann sagðist alclrei myndi gleyma litlu stúlkunni, sem færði honum svaladrykkinn; en á hverjum degi, á meðan hann lifði, skvldi hann biðja guð að blessa hana. Vercið, sem Dísa átti við, er í Matteusar guðspj. io, 42. -------------------------o------- SMALINN, SEM VARÐ GJALDKERI KONUNGS. fHandrit H. Kr. Fr.J Nushirvan Persakonungur hitti einhverju si.ini fátækan smaladreng, að nafni Ali. Þótti konung'i dreagurinn einarður og greindur í svörum, og fékk þvi góðan þokka til hans, tók han'.i að sér, og lét menta hann, sem föng voru á, og að síðustu gerði hann hann að gjaldkera sínum. í þessu embætti sínu sýndi Ali bæði trúmensku og hollustu, en alt um það gerðust margir öfundarmenn lians, og báru það út, að ha.in drægi uudir sig mikið fé af eigum landsins. Orðrómur þessi barst og kon- ungi til eyrna. Méð því að hann var sannfærður um. að þetta væri ósatt, réð hann með sér, að láta rógberendur sér til skamm- ar verða, svo að þeir fvndu til þess. Hann lést trúa orðum þeirra, og kvað á dag, er Þeir skyldu allir fylgja honum til húss Alis, svo að hann enga vitneskju fengi um það á undan. Ali varð mjög forviða við komu konungs og fylgdarmanna ha.is; fylgdi hann þeim ölluni að bóði konungs um öll húsakynni sín.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.