Sameiningin - 01.12.1959, Blaðsíða 3
Sameiningin -------------------------------
A quarterly, in support of Church and Christianity amongst Icelanders
Published by
THB EVANGELICAL LUTHERAN SYNOD OE NORTH AMERICA
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
Treasurer: MRS. B. S. BENSON, 7 57 Home St., Winnipeg: 3, Manitoba
Séra Jón Auðuns dómprófaslur, Heykjavík:
Stjarnan
En er þeir höfðu hlýtt á konunginn, fóru þeir leiðar
sinnar. Og sjá, stjarnan, sem þeir höfðu séð austur frá,
fór fyrir þeim, þar til er hún staðnæmdist þar yfir,
sem barnið var. Matt. 2, 9.
Guðspjallsorðin bregða upp fyrir oss mynd, sem á
bernskujólum, hjá föður og móður, var oss kær. Vitring-
arnir þrír, sem hugmyndaflug barnsins hafði búið skrúð-
klæðum, skarti gulls og dýrra steina, þokast áfram á langri
leið, og fegurð ævintýranna er yfir ferðalagi hinna þriggja
manna. Rökkrið hindrar þá ekki, næturmyrkrið bannar þeim
okki för, því að blikandi stjarna fer fyrir þeim, og henni
fylgja þeir. Gegn um ríkar borgir og auðsæl lönd, yfir
mannauða sanda og endalausar eyðimerkur hefir leið þeirra
legið. Stjarnan vísar veg að leiðarlokum, og hún nemur
staðar yfir nýfæddu barni.
Hvílík vegferð! Að ferðast yfir auðugar borgir og lönd,
fram hjá höllum konunganna og lærdómssetrum og spek-
inganna, yfir álfur og endalausar auðnir til þess eins, að
eiga leiðarlok hjá litlu barni.
Myndin fær sína fullu merking, ferðin sitt stórkostlega
markmið, þegar þess er gætt, að í barninu, sem stjarnan
staðnæmdist yfir, býr vaxtarhæð alls þess, sem fegurst
liefir verið hugsað á jörðu, hámark þess heilagleika, sem á
iörðu hefri birzt, vaxtarbroddur þeirrar vizku, sem mann-
legur hugur getur gripið. Enginn svo fagur draumur hefir
á jörðu fæðzt um Guð eða mann, að hann bendi ekki til
barnsins í jötunni. Engin von svo heilög, að hún finni ekki