Sameiningin - 01.12.1959, Blaðsíða 14
12
Sameiningin
vegar getið, að hún hafi verið fríðleiks kona, óeigingjörn,
og að hún hafi viljað öllum gott gera. Bjuggu þau hjón um
margra ára skeið við góð efni og mikla risnu að heimili
sinu í Pembína, þar sem Stefanía ólst upp, og þótti hún
snemma mjög glæsilegur kvenkostur.
Ung að aldri giftist hún séra Jónasi Ara Sigurðssyni
(.1865—1933) frá Litlu-Ásgeirsá í Húnavatnssýslu. Eins og
kunnugt er, var séra Jónas einn hinn fjölhæfasti gáfumaður,
sem uppi hefir verið með Vestur-íslendingum, og varð þjóð-
kunnur sem ræðuskörungur og skáld. Frú Stefanía sómdi
sér vel við hlið þessa andlega afburðamanns. Spor þeirra
lágu víða um byggðir vorar: í Dakota, vestur við Kyrrahaf,
í Saskatchewan, og svo síðast hér í Manitoba. Og það hefir
ekki fennt í spor þeirra. Þeir, sem enn eru á lífi af sam-
ferðasveit þeirra, minnast þeirra með aðdáun og þakklæti.
Menn minnast séra Jónasar, hins sérstæða persónuleika,
hins mikla ættjarðarvinar, þess manns, sem einna bezt vald
hefir haft á íslenzkri tungu á meðal vor, bæði í ræðu og
riti. Menn minnast frú Stefaníu ekki síður, sakir fríðleika,
prúðmennsku og glæsilegrar framkomu hennar. Hún var sál
hússins, það var fögur og göfug sál, frá henni stafaði mildur
bjarmi, sem klæddi umhverfið birtu og yl. Alls staðar kom
hún fram til góðs, bæði utan húss og innan. Sælir eru hjarta-
hreinir. Sælir eru friðflytjendur. Sælir eru hógværir og
miskunnsamir. Þeir, sem þekktu frú Stefaníu bezt, setja
eins og ósjálfrátt þessi ummæli frelsarans í samband við
ævi hennar og starf.
Þau hjón eignuðust þrjú efnileg og vel gefin börn. Eru
þau Theodór, fyrrum prestur í Selkirk og víðar, Jón, læknir
í Los Angeles, og Elín, kona Hannesar Kjartanssonar, ræðis-
manns í New York, og þar andaðist hún 19. sept. s. 1.
Fyrir þrjátíu og sex árum kvað séra Jónas fagurt ljóð
við líkbörur tengdamóður sinnar; vil ég nú láta hann kveðja
konu sína með nokkrum ljóðlínum úr þessu kvæði, í nafni
okkar allra, og heilsa henni um leið í hásölum eilífðarinnar,
þar sem þau mætast nú á ný:
Á himni og jörð er heilagt orð,
sem hneigja englar góðir, —
og allir menn um alla storð,
en orðið það er: móðir ...