Sameiningin - 01.12.1959, Blaðsíða 15
Sameiningin
13
Sá ylur, sem vermdi okkar þjóð,
var ylur frá móður hjarta.—
Þú áttir þá helgu himins glóð, —
það helgilín bezt mun skarta. —
í lífinu þörf og ljúf og góð
— þú látin átt framtíð bjarta.
Þú þerraðir móðir, margra tár,
— við megum því ekki gráta.
Sem móðir og kona öll þín ár
þú allt vildir blessað láta,
því hefjum í þökk til himins brár,
nú hrellir ei dauðans gáta.
Guði séu þakkir, sem gefur oss sigurinn yfir hörmum
jarðlífsins, yfir gröf og dauða.
Lík frú Stefaníu var flutt til Selkirk til greftrunar og
jarðsett við hlið manns hennar í grafreit safnaðarins, sem
hann þjónaði síðast. Þrír prestar tóku þátt í kveðjuathöfn-
inni, þeir séra Edward Day, núverandi prestur Selkirk-
safnaðar, séra Eric H. Sigmar, forseti isl. lúterska kirkju-
félagsins, og séra Valdimar J. Eylands, sem flutti kveðju-
rnál þau á íslenzku, sem prentuð eru hér að framan. Söng-
fiokkur safnaðarins söng íslenzka sálma. Líkmenn voru
þeir Jón Eiríksson, Grímur Eyman, Sam Goodman, Kristinn
Goodman, Gunnlaugur Jónsson og Jón Ingjaldsson, en allir
voru þessir menn safnaðarráðsmenn og nánir samverka-
roenn og vinir þeirra séra Jónasar, á starfsárum þeirra í
Selkirk.
Bréf til Sameiningarinnar
Morden, Man., 8. október 1959.
Mér hefir oft dottið í hug að skrifa fáein orð héðan og
þakka fyrir Sameininguna, og um leið óska henni til ham-
ingju í framtíðinni. Það er merkilegt, að þetta íslenzka
kirkjublað okkar kemur enn þá út eftir öll þessi mörgu ár.
Mikið hafa ritstjórar og ráðsmenn lagt á sig, enda er þar
að finna gullnámu, ef við viljum nota okkur þann fjársjóð!