Sameiningin - 01.12.1959, Blaðsíða 17
Sameiningin
15
Nú fyrir þremur árum var stofnaður lúterskur söfn-
uður í Morden af Rev. Robert Fedde frá Colorado, sem
tilheyrir E.L.C. Hann og fjölskylda hans eru nú farin til
Suður-Ameríku, en Rev. Ralph Odegard frá McLaughlin,
Alberta, glæsilegur ungur maður, er nú tekinn við.
Sumir spyrja: „Er ekki bezt að sameinast þessum söfn-
uði áður en langt líður?“
Framtíðin er í Guðs hendi!
Með vinsemd og virðingu,
Louisa G. Gíslason
Valdimar J. Eylands:
Lífið eftir dauðann
samkvæmt gyðinglegum og krisiilegum skoðunum
(Erindi flutt á ensku, á kirkjuþingi í Selkirk, 1959.)
I.
Þrjár spurningar liggja til grundvallar trúarbrögðum
og heimspeki: Hvaðan? Hvers vegna7 Hvert? Er menn
spyrja þannig, í þessum fræðigreinum. hafa þeir í huga
ævi mannsins hér á jörð, og væntanleg örlög annars heims.
Hvaðan komum vér? Hver er tilgangur jarðlífsins? Hver
munu örlög mannsins í öðru lífi, ef um slíkt er að ræða?
Kristnir menn halda því fram, að biblían svari þessum
spurningum, og að svar hennar sé ljósara og áreiðanlegra á
cúlan hátt en svör annarra bóka, sem íjalla um trúarbrögð.
Kristnir menn trúa því, að svörin, sem biblían gefur við
þessum spurningum hafi verið opinberuð, að Guð hafi gjört
þessi efni lýðum ljós, á þann hátt sem höfundur Hebrea-
bréfsins bendir til, er hann segir: „Eftir að Guð forðum
hafði oftsinnis talað til feðranna og með mörgu móti fyrir
munn spámannanna, hefir hann í lok þessara daga til vor
talað fyrir soninn .. .“ (1:1).
Eins og sjá má af þessum ummælum Hebreabréfsins,
var þessi opinberun ekki öll gefin á einum stað og tíma,
heldur er hér um langa þróun að ræða. Sú þekking, sem vér