Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1959, Side 9

Sameiningin - 01.12.1959, Side 9
Sameiningin 7 starf snerti, en hann hefði hafnað þeim vegna tryggðar við sinn eigin söfnuð. Kvaðst séra Eric fagna því, að söfn- uðurinn hefði ákveðið að veita honum aðstoð við starfið — (systir Laufey Olson hefir verið ráðin til að aðstoða á ýmsan hátt við sunnudagaskóla, vitjanir til sjúklinga o. fl.). í sam- bandi við ritstörf Dr. Eylands skýrði séra Eric frá því, að nýkominn væri út bæklingur eftir hann, The Hereafíer — 3n Jewish and Christian Thought, væri það fyrirlestur, sem Dr. Valdimar hefði flutt á kirkjuþinginu í sumar, er hefði vakið þá hrifningu, að samþykkt hefði verið að félagið gæfi iiann út. Mr. S. O Bjerring ávarpaði heiðursgestina fyrir hönd safnaðarins, bæði á ensku og íslenzku; Mrs. O. Stephensen mælti af hálfu kvenfélaga safnaðrains. Hon. Duff Roblin, forsætisráðherra Manitobafylkis, flutti kveðju frá stjórn sinni og fylkinu í heild; sagði hann að kristileg og menn- ingarleg áhrif frá starfi kirkjunnar næðu til mannfélagsins í heild; minntist hann á, að Hon. George Hutton, sem kom með honum, hefði verið í skátafélagi Fyrstu lútersku kirkju fyrir 27 árum. Grettir L. Johannson konsúll flutti kveðju frá forseta og ríkisstjórn íslands; minntist hann á, að ísland hefði sýnt Dr. Valdimar maklega viðurkenningu með heim- boðum til ísiands og heiðursmerkjum; Dr. Richard Beck, íorseti Þjóðræknisfélagsins, flutti kveðju frá félaginu, en Dr. Eylands hefir starfað mikið í því og var forseti þess í mörg ár og nú heiðursfélagi. Á milli þess að ræður voru fluttar var sungið. Báðir söngflokkar kirkjunnar sameinuðust og höfðu sérstaklega æft sig fyrir þetta tækifæri, og var yndi að hlusta á þá und.ir stjórn Mrs. B. V. ísfeld. Miss Sigrid Bardal annaðist undir- spil á píanóið. Mrs. Lincoln Johnson söng einsöng. Samkomustjóri afhenti Dr. Eylands skrautritað ávarp og peningagjöf frá söfnuðinum og öðrum vinum og Mr. Oscar Bjorklund las ávarpið. Strax í byrjun samsætisins afhenti lítil stúlka, Aldís Thorsteinson, Mrs. Eylands undur- fagran blómvönd; í öllum ræðunum, sem fluttar voru, kom greinilega fram, hve mikils álits og hve mikillar virðingar hún nýtur í hvívetna. Og í fyrstu orðunum, sem Dr. Eylands mælti, þegar hann stóð upp til að þakka fyrir þetta vinahóf, minntist hann þess styrks og þeirrar uppörvunar, sem hann hefði jafnan notið frá konunni sinni í öllu sínu starfi, í blíðu

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.