Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1959, Síða 21

Sameiningin - 01.12.1959, Síða 21
Sameiningin 19 Þess ber þó að gæta. að í fyrstu var talið, að upprisan yrði aðeins hlutskipti réttlátra; ranglátir menn dvelja áfram í Helju. En í Daníelsbók er kveðið upp úr um það, að synd- arar muni einnig rísa upp frá dauðum. Helja er þess ekki megnug að hegna þeim nægilega fyrir glæpi þeirra og mis- gjörðir. Þannig má segja, að kenningin um lífið eftir dauðann, jafnvel upprisukenningin, og fullvissan um umbun réttlátra og hegning óguðlegra hafi verið komin í nokkurn veginn fast horf, þegar Gamla testamentis ritin voru fullsamin. En þessar kenningar héldu þó áfram að þroskast í meðvitund manna og skýrast betur á hinu svonefnda apókrýfiska tíma- bili, — á milli testamentanna tveggja. Hér er auðvitað um að ræða uppistöðu-atriði í Nýja testamentinu, og svo síðar í kenningu kristinnar kirkju. II. í Nýja testamentinu komum vér upp á nýjan sjónar- hól, þar sem útsýnið er víðfeðmara og loftslagið hreinna en í hinum eldri ritum, er um framhaldslífið ræðir. Að vísu er þar ekki um nýjar hugmyndir að ræða í þessum efn- um, en hugtökin eru tekin til nýrrar meðferðar, og þeim lyft í hærra veldi. Kristur bar ekki fram nýjar kenningar um framhaldslífið og upprisuna, en með kenningu sinni, dauða sínum og upprisu lyfti hann þessum vonum og draum- um upp úr móðu og mistri mannlegs hugar, upp í hið skæra ljós veruleikans, — hinnar endanlegu opinberunar Guðs. Vantrúaðir menn skopuðust auðvitað að kenningunni i;m upprisuna, þá eins og nú. Kristur hafði ekki starfað lengi sem kennari á meðal þjóðbræðra sinna, þegar Sad- dúkear nokkrir gengu á fund hans og hófu kappræður um framhaldslífið og upprisuna. Saddúkearnir voru fríhyggju- menn þeirra tíma, og vildu engu trúa, lengra en nef þeirra náði. Hugmyndin um upprisu framliðinna var að áliti þeirra barnalegur draumur og hin mesta fjarstæða. Þeir bentu á að Móses, hinn mikla löggjafi þjóðarinnar, minntist ekki með einu orði á upprisuna, og hinir helztu á meðal spámanna ekki heldur. Aðeins nokkurir á meðal hinna svo nefndu smærri spámanna viku að þessum efnum í ritum sínum, og höfundar sumra sálmanna höfðu látið skáldfák sinn fara með sig út í rökfræðilegar ófærur í þessum efnum. Til þess

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.