Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.12.1959, Qupperneq 25

Sameiningin - 01.12.1959, Qupperneq 25
Sameiningin 23 anna tveggja, sem gerir oss unnt að þekkjast, og íklædd þessum dýrðlega líkama verðum vér til þess hæf að standa frammi fyrir augliti Guðs. Oss kann að þykja það miður, að lífinu fyrir handan gröf og dauða skuli ekki vera lýst með meiri nákvæmni; oss er aðeins leyft að sjá fyrstu geisla upprennandi sólar; vér sjáum hylla undir land lífsins, en sjáum eigi liti þess né línur. En vér vitum þó nóg til að vér getum verið öryggir í lífi og dauða, því að Hvað er hel? Öllum líkn sem lifa vel, engill sem til lífsins leiðir, ljósmóðir sem hvílu breiðir, sólarbros er birta él — heitir hel. Áramóiahugsanir Framh. frá bls. 10. inn var undir stjórn forsöngvarans, var margt fólk honum til aðstoðar, og fór söngurinn vel úr hendi. Kennararnir fluttu báðir erindi. Annar um „Að f ylgja Betlehems- stjörnunni á vegleysum lífsins". En hinn flutti erindi um „Steinöldina og áhrif hennar“, og færði öllum viðstöddum nýstárlegan fróðleik. Mér er þetta kvöld ógleymanlegt, vegna helgi árstíðar- innar, sem hafði snortið mig; og ég vissi, að þessi eyktamót tímans voru nokkurns konar dómsdagur yfir hverjum manni, sem gerði sér einhverja grein á afstöðu sinni fyrir Guði og reikningsskil þau, er hann átti honum af hendi að ynna. Ég held að ég hefi verið mér að einhverju leyti með- vitandi um þá ábyrgð, sem fylgdi því að lifa. Mér virtist eins og vor andlega móðir, kirkjan, væri að kunngjöra börnum sínum þá ábyrgð, sem árunum eru fylgjandi og þeim samtengd, og fer vaxandi. — Og þar sem ég sat úti á kirkjuloftinu, þetta gamlárskvöld, var ég mér þess meðvitandi, ef til vill í fyrsta sinni, að Guð væri að kalla mig hliðstæðis við og meðvitundar um vilja sinn.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.