Sameiningin - 01.11.1945, Page 4
180
hag eða frama: þar sem Guð vildi að hann hjálpaði fólkinu,
þangað fór postulinn tafarlaust og lagði sig allan fram.
Þessi einlægni Páls var gjörð að umtalsefni fyrir nokkr-
um árum í dálítilli grein í blaðinu Canadian Churchman.
Finst höfundinum, eins og satt er, að oft hafi þjónum kirkj-
unnar tekist afar-laklega að fara eftir dæmi postulans í
þessu. Hann segir, að ef Páll frá Tarsus hefði haft sama
hugarfar eins og sumir orðsnjallir og glæsilegir kirkju-
S'körungar nú á. dögum, þá hefði hann ekki verið svona
fljótur á sér að' hefja -för til Makedóníu. Hann hefði tekið
margt fleira með í reikninginn, heldur en þetta hugboð sitt
um vilja Guðs. Líklega beðið í nokkra daga, og síðan skrifað
Makedóníu-manninum á þessa leið: —
“Kæri vinur og bróðir: — Þú manst líklega eftir til-
boðinu sem þú gjörðir mér um daginn, um að eg kæmi yfir
til Makedóníu og hjálpaði fólki þar. Þú fyrirgefur mér þó
eg segi þér hreinskilnislega, að mig hálfpartinn furðar á því
að þú skulir ætlast til þess af manni, sem náð hefir því
áliti sem eg hefi náð í kirkjunni, að eg í fullri alvöru geti
tekið slíka köllun til greina, án frekari upplýsinga.
Það er ýmislegt, sem mig langar til að vita, áður en eg
ræð þetta við mig; og þætti mér vænt um ef þú sendir mér
línu, hingað til Troas, og gæfir mér fullar upplýsingar.
Fyrst og fremst vildi eg vita hvort þetta starf í Make-
dóníu yrði í bæjum eða úti í sveit. Það skiftir miklu; því
að mér hefir verið sagt, að ef prestur hefji verk sitt uppi
í sveitum, þá sé hann sama sem útilokaður -frá bæjarsöfn-
uðum upp frá því. Og ef messustaðirnir verða tveir eða
fleiri þar í Makedóníu, þá, hreimt út sagt, læt eg mér ekki
detta í hug að taka þessari köllun.
Eg hefi haft langan og dýran undirbúning; þótt eg segi
sjálfur frá, þá er eg sanhedrin-maður, — sá eini kennimaður
úr þeim hópi í kirkjunni nú sem stendur. Sérstaklega hefi
eg æft þá gáfu, sem mér er meðfædd, að tala fyrri fjölmenni.
Það hentar mér bezt.
Og þeir dagar eru nú liðnir, að þú getir ætlað nokkrum
manni að ana út á nýtt starfssvið >án þess að hafa nokkra
hugmynd um launakjörin. Eg er búinn að vinna mér upp
ágætt brauð austur í Galatíu, og að færa mig niður úr því
sem þar býðst — það væri alvarlegt efni.
Þú gjörðir afbragðs-vel, ef þú næðir saman þessum
góðu bræðrum í Makedóníu og sæir hvað eiginlega þið getið