Sameiningin - 01.11.1945, Síða 11
187
Kveðja frá biskupi Íslands
Lesin af cand Pétri Sigurgeirssyni.
Reykjavík, 14. júní 1945.
Elsku Pétur minn.
Af því að eg veit að þú verður staddur á hátíðaþingfundi
kirkjufélagsins, sendi eg þér þessar línur til þess að biðja
þig um að flytja þar persónulegar kveðjur mínar. Prófessor
Ásmundur Giuðmundsson mun flytja kveðjur þjóðkirkjunnar
og mínar, sem biskups.
Mér þótti vænt um að hann gat tekist þessa ferð á
hendur. Hann er virðulegur og ágætur fulltrúi íslenzku
kirkjunnar og þú þekkir einlægni hans, áhuga og hæfileika
og síðast en ekki síst hans mikla og ágæta starf fyrir kirkj-
una hér heima.
Islendingum vestan hafs á heldur ekki að senda nema
hina bestu menn.
Þú þekkir hversu miklar mætur eg befi á Vestur-ís-
lendingum. Það er ekki að ástæðulausu. Þeir hafa sýnt
glæsilega mannkosti og unnið stór afrek í andlegum og efnis-
legum skilningi í Vesturheimi og á þann hátt orðið ættjörð
sinni til sæmdar.
En auk þess hafa þeir reynst mér, persónulega, svo vel
að eg mun því aldrei gleyma. Þeir reyndust mér sannir
vinir og drengskaparmenn. Þegar eg kom í heimsókn til
þeirra tóku þeir mér sem bróður og vini. Þeir báru mig á
höndum, þeir gáfu mér gjafir og þökkuðu mér langt fram
yfir það, sem eg átti skilið.
Eg eignaðist þar vini, sem eg mun aldrei geta fullþakk-
að, bæði prestana og fjölda leikmanna, úr hópi karla og
kvenna.
Margt er það, sem eg sá og heyrði í starfi kirkjunnar
vestra, sem var til fyrirmyndar og heimakirkjan gæti lært
af. Prestarnir voru áhugasamir, einlægir í starfi sínu og
sístarfandi.
Eg sá það fljótt og skildi, er eg kynntist starfi evan-
gelisk lúterska kirkjufélagsins, sem nú á 60 ára afmæli, hve
stór og blessunarríkur þáttur það hafði verið í menningu
og lífsbaráttu Íslendinga vestra.