Sameiningin - 01.11.1945, Síða 15
191
fyrir hönd þess kirkjufélags sem eg er fulltrúi fyrir, áfram-
haldandi samvinnu á hverju sviði, sem getur aukið hag
vor Islendinga og allra borgara þessarar þjóðar andlega
eða efnislega. Vér erum hvortveggja Islendingar og borg-
arar þessarar þjóðar. Áhugmál vor stefna öll að uppbygg-
ingu þessa lands og að velferð og fullkomnun íbúa þess.
Hér er stórt og mikið verksvið. Vér fullkomnum gildi þeirra
trúarstofna, sem vér tilheyrum með því að fullkomna, ekki
aðeins hina andlegu hlið lífsins, en einnig hina efnislegu,
með því að bæta lífskjör og efnahag allra manna.
Þess vegna, í anda þeirrar stefn-u, rétti eg út hönd til
samvinnu, og veit að hún heldur áfram að aukast eins og
að undanförnu, og að vér göngum saman, hlið við hlið í
framtíðinni, eins og vér erum þegar farin að gera, en togumst
ekki lengur á eins og einu sinni var gert.
Eg óska þessu kirkjufélagi, Hinu Evangerisk Lúterska
Kirkjufélagi Íslendinga í Vesturheimi, til hamingju á þessari
afmælishátíð, og alls góðs í framtíðinni. Eg þakka hinu
vinsamlega boði sent til kirkjufélags þess er eg tilheyri,
um að senda fulltrúa hingað á þennan þingfund, til að
samgleðjast ykkur á þessum þýðingarmiklu tímamótum. Eg
ber þá kveðju fram með mikilli ánægju og bið að blessun
Guðs hvíli yfir oss öllum og tilraunum vorum til að gera
hans vilja.
Afmæliskveðja frá
Þjóðræknisfélaginu
Flutt á 60 ára afmælishátíð Hins evangelisk-lúterska
kirkjufélags íslendinga í Vesturheimi, í Winnipeg,
22. júní 1945.
af dr. Richard Beck.
Herra forseti! Virðulegi sendifulltrúi frá íslandi og aðrir
góðir gestir! Háttvirta samkoma!
Stjórnarnefnd Þjóðræknisfélagsins er innilega þakklát
fyrir þá vinsemd, er framkvæmdarnefnd Hins evangelisk-
lúterska kirkjufélags Íslendinga í Vesturheimi sýndi félagi
voru með því að bjóða því að eiga fulltrúa, er flytti kveðjur