Sameiningin - 01.11.1945, Page 20
196
legt pláss vegna vegalendgar, raforku og nálægð kí.rkju og
samkomuhúss safnaðarins. Var aftur farið að gera fyrir-
spurnir og var það fyrir atbeina forseta Bandalagsins að því
gafst kostur á 8 ekrum á vatnsbakkanum við Húsavík, hina
fornu landnámsbyggð þar sem frumherjar íslenzku byggð-
arinnar numu land árið 1875.
Var aftur kallaður framkvæmdar nefndar fundur og
14 konur tóku sig upp og skoðuðu bæði plássin, Árnes
landið og þetta pláss við Húsavík, sem kostur var á að fá
keypt. Leist konunum vel á Húsavíkur landið og var aug-
ljóst að hrinda mætti í framkvæmd þessu máli nú strax og
starfrækja á næsta ári. Braut liggur meðfram landinu frá
“highway” ofan að vatni. Töluvert af skógi hefir verið
rutt, fjaran ágæt og raforka til staðar.
Var svo fundur haldinn í Húsavíkur-kirkju og tillaga
lögð fyrir fundinn um að þessar 8 ekrur séu keyptar fyrir
$500.00. Var tillagan samþykt af stjórnarnefndinni og hún
svo lögð fyrir þingið 9. júní og sú samþykt staðfest af
þinginu.
Er nú búið að ráðstafa borun á brunni næsta vor
og ýmislegt annað og byrjað að safna til sérstakra bygg-
inga. Var áfcveðið á þinginu að kenslustofan, sem er líka
fundarsalur, sé helguð minningu fallinna íslenzkra hermanna
í báðum stríðunum. Var stofnaður sjóður til þess á þing-
inu og nam sá sjóður þegar þingi var slitið $532.00. Langruth
kvenfélag ætlar að gangast fyrir “Hospital Hut”. og er
vonast eftir að fleiri kvenfélög taki að sér viss hlutverk,
sem hrindi áfram verklegum framkvæmdum.
Fjársöfnun gengur vel, er nú í aðal sjóðnum um
$2,100.00. Ber það vott um góðan áhuga hjá fólki og jafn-
framt tiltrú almennings á fyrirtækinu.
Þetta er aðalmál Bandalagsins og óx sú hugmynd út
úr kristindóms námsskeiði því er Bandalagið hélt uppi
fyrstu árin. Er tilfinningin hjá mörgium konum sú að
kristileg fræðsla ætti að vera endurreist ef mögulegt er
að fá kennara; og var ráðgert á þessu þingi að farið væri
norður í byggðina sem áður var starfað í og upplýsinga
leitað þessu viðvíkjandi. í sambandi við þetta var tillaga
samþykt á hinu ný afstaðna þingi svohljóðandi:
“Að B.L.K. tjáir sig viljugt til að vera í samvinnu við
kirkjufélagið á þessu sumri, með að koma á fót sunnudaga-
skólum í prestlausum byggðum.”