Sameiningin - 01.11.1945, Blaðsíða 23
199
1. Að hafa áhrif á einstaklinginn í gegnum kirkjurnar,
og bindindisfélögin.
2. Að gera ákveðnar framkvæmdir í því svo sem að
minka tækifæri fólks til þess að ná í áfengi.
Eins og nú er, þá er það eins löglegt að selja áfenga
drykki eins og það er að prédika guðspjöllin, sagði hann.
Eina aðferðin til þess að ráða fram úr þessu er algjört
vínbann. En Mr. Spence sagði að fyrsta sporið í þá átt, væri
að útvega færan skrifara og borga honum fullnægjandi
kaup svo hann geti notað allan sinn tíma fyrir bindindis-
starfið í fylkinu. Þörfin á bindindi er mörgurn augljós. Það
sem vantar eru góðir leiðtogar. Hann benti á að það væri
æskilegt að hafa bindindis samkomur “Temperance Rally”
að sumrinu, en á fundi sem haldinn var 19. apríl, þá var
bent á það að vegna kosninganna og ýmislegs fleira, þá
væri bezt að fresta slíkum fundi til hausts. Á þessum
sama fundi var stungið upp á því að veita einhverjum
uppfræðslu í að kenna bindindi, með því að kosta einn eða
tvo á “Yale University”, þar sem svoleiðis kensla fer fram
í sex vikna tíma í skólafríinu. Það var ákveðið að senda
nefnd á fund Menntamáladeildarinnar og biðja um aðstoð
hennar í þessu sambandi.
Útkoman er sú, að það er nú hér um bil víst að séra
C. S. Matchett verður sendur á Yale University og það
gefur okfcur von um að fá leiðtoga til að útbreiða bíndindis
hugmyndina svo almennings álitið breitist í bindindisáttina.
Séra Spence hefur starfað að bindindi í Alberta og
Saskatchewan, og í þeim fylkjum hefur það komið í ljós að
peningarnir koma inn eftir þörfinni, oft frá einstaklingum.
Hann sagði að heimilið, skólinn og kirkjan þyrftu að taka
höndum saman í að uppfræða almenning um áhrif vínandans,
en á sama tíma þurfa að vera í gildi þau lög, er leggja ekki
freistni í mynd áfengis á veg unglinganna sem upp eru að
vaxa. Honum finnst mikil þörf á því í Manitoba að vekja
meiri áhuga fyrir bindindi og að auka starfið sem mest.
Þegar bindindisvinir eru með öllu móti að reyna að
vekja heilbrigða bindindishugsun hjá uppvaxandi lýðnum.
Þá eru vínsalar að koma sinni flugu inn í hjarta ungdómsins
með sömu aðferð sem þeir hafa náð mörgu öðru á sitt vald.
Það er auglýst með stóru letri í dagblöðunum að þeir hafi
gefið $15,000 til verðlauna í háskóla fylkisins, og svo eru
2 menn hátt standandi í þeirra flokki settir í nefnd í sam-