Sameiningin - 01.11.1945, Page 24
200
bandi við háskólann. Þetta er ein af þeim mörgu aðferðum
sem þeir nota til að ná áhrifum. Annað, 2 leikvellir í borg-
inni tilheyra bjórbruggurum og eru notaðir til að ná sem
flestum dren.gjum á þeirra vald. Það er kominn tími til
þess að almenningur vakni og verji börnin sín frá svona
tálsnörum.
Önnur staðhæfing kom í dagblöðunum út af dauðsfalli
þar sem menn höfðu drukkið eitrað vín. “Coroner” sagði
að ástæðan væri sú að það væri of erfitt að ná í vín löglega.
Til hvers eru nokkur bannlög í landinu. Því megá menn
ekki stela eða gera það sem þeir vilja? Öll lög eru bannlög
og ætti að vera hlýtt.
Hvað er kirkjan að gera í þessu bindindismáli? United
Church of Canada, hefur verið vel vakandi í bindindis-
málinu í mörg ár og haft útvalda menn, sem hafa unnið að
bindindi alt árið um kring og sem hafa gefið sínar skýrslur
við og við til stöðugra nefnda sem hafa komið þeirra hug-
myndum á framgang. United Church of Canada hafa staðið
fremstir í því að leggja beiðni fyrir Dominion þingið um
ýmsar umbætur, viðvíkjandi meðhöndlun á áfengi. En þeirra
síðasta hugmynd sem samþykt var á þeirra kirkjuþingi í
fyrra var ekki samþykt hér á okkar Manitoba þingi í haust
sem leið. Uppástungan fór fram á, að stjórn Canada tæki
að sér alla áfengis bruggun. Aðal ástæðan sem kom þessari
uppástungu á stað var sú að taka allan ágóðan úr höndum
einstaklingsins. Stórtemplar Manitoba, barðist á móti þessari
hugmynd. Hann hélt því fram, að ef einstaklingur bryti
lögin, þá gæti maður fengið hjálp hjá því opinbera, til að
lögsækja. En ef stjórnin bryti lög landsins þá yrði erfiðara
viðureignar. O.g annað það, maður heyrði aldrei neitt frá
stjórnar áfengissölunni annað en gróðann sem við fengjum
reiknaðann bara á annan veginn. Hvað er um alla eyðilegg-
ing.una af áhrifum vínsölunnar? Ef það yrði reiknað rétt,
þá myndi gróðinn verða mjög smár, eða alls enginn, ef
mannslíf og velferð konu og barna er nokkurs virði.
Kaþólska kirkjan, sem aldrei áður í sögu heimsins hefur
sagt orð á rnóti áfengi, rís upp í Quebec og fordæmir með-
ferð áfengissölunnar og heimtar að það séu sett meiri höft
á þá stjórnarsölu. Eins gerði Enska kirkjan, sem aldrei hefir
komið fram opinberlega á móti áfengissölunni. Nú rís hún
upp í Ontario fylki í heilu biskupsdæmi. Nefnd synód-
unnar vaknaði fyrst 1938 og vakti athygli á því að eitthvað