Sameiningin - 01.11.1945, Side 25
201
yrði að gera viðvíkjandi áfengissölunni, sem væri að ganga
fram úr öllu hófi. Ári seinna var bréf sent til allra þingmann-
anna og beðið um endurbætur. Ári síðar, risu konur Ensku
kirkjunnar upp og kvörtuðu yfir áhrifum þeim sem snertu
drykkjuskap kvenna innan þeirra félagsskapar, og svo á
kirkjuþingi 1943, var því bætt við að benda stjórninni á
hættuna af kynferðissjúkdómum þar sem yfir 200,000 sjúkl-
ingar væru meir eða minna veikir af þeirri voða sótt í
Canada. Sem væri sannað að frá 65 til 90 prósent væri bein
afleiðing af áfengisdrykkju fargi.
Medódista kirkjan í Bandaríkjunum tók atkvæði nýlega
á meðal sinna meðlima frá hafi til hafs. Yfir 8 miljón
greiddu atkvæði um að setja á vínbann aftur. 92% voru
með, en 8% á móti.
Því stendur kirkjan á verði?
Af því að þeir, sem eru á túr á laugardagsfcvöldin, eru
sjaldan í kirkju í sunnudagsmorgnana. Heimilis drykkju-
skapur eykur ekki sunnudaga skólagöngu. Ungir menn eða
ungu stúlkurnar eða aðrir, sem eru keyptir út úr fángahús-
unum á sunnudagsmorgnana er ekki líkleg til að koma
til kirkju þann daginn. Laugardags drykkjuskapur hjálpar
ekki kirkjusókn og ebki heldur drykkjuskapur á jólum og
nýári eða öðrum hátíðum.
Það hlítur að vera erfitt fyrir presta landsins að horfa
upp á áfengis áhrif við sérstök tækifæri, þar sem þeir
eiga að vera leiðtogar, sérstaklega við giftingar, og eins
þegar þeir sjá börn send á barnaheimili, vegna drykkju-
skapar foreldranna. Þeir heimsækja safnaðar meðlimi á
spítölunum, sem hafa meiðst fyrir afleiðingar vínsins. Þeir
eru kallaðir sem sáttasemjarar á heimilum þar sem áfengið
hefur sundrað friði heimilisins. Þeir eru beðnir að jarðsyngja
þá, sem deyja af slysum, orsökuð af þeirri sömu bölvun
mannkynsins. Það er betra að þeir sjálfir séu þá ákveðnir
vínbanns vinir.
í guðs bænum takið einhverja ráðstöfun á þessu þingi,
í nafni bindindisvinarins, Dr. Jóns Bjarnasonar, sem var
fyrsti maðurinn til að vekja bindindishreyfinguna í þessum
lúterska félagsskap á fyrstu þingum þess, sem hafði svo
ógleymanle gar afleiðingar þá, sem sumir búa að enn í dag.