Sameiningin - 01.11.1945, Side 31
207
þeim til ánægjulegrar eignar. Mun safnaðarstarf og kirkju-
líf þar vera í góðu lagi.
Lundar og Manitobavatns-bygðir.
Séra B. Theodore Sigurðsson hefir um tíma þjónað
söfnuðunum í Lundar prestakalli. Þar á söfnuðurinn prests-
hús, sem keypt var fyrir örfáum árum. Nefndinni hefir ekki
borist í hendur nein starfsskýrsla, þar sem Lundar söfnuður
og prestakall eru sjálfstæð og ekki undir umsjón Trúboðs-
nefndarinnar.
En söfnuðir og bygðir við Silver Bay, Vogar, o. s. frv.,
hafa talist til heimatrúboðs. Þar mun séra Teodore hafa
messað við tækifæri 'Og unnið önnur prestsverk, þegar til
hans hefir verið leitað.
Frá starfi Trúboðsnefndarinnar þar um héruð er það
að segja, að á síðastliðnu sumri fór séra Skúli J. Sigur-
geirsson messuferðir í umboði nefndarinnar. Fór hann einnig
í sömu erindum til annara bygða. Skýrsla hans skýrir frá
starfi sem hér segir:
Lundar: Þrjár messur, kirkjusókn alls 131; skírnir 8.
Steep Rock: Ein messa, aðsókn 31.
Oak View: Ein messa, aðsókn 38; ein barnsskírn.
Silver Bay: Ein messa, aðsókn 23.
Vogar: Ein messa, aðsókn 25.
Piney: Tvær messur, aðsókn alls 64; 1 skírn.
Wampum: Ein messa ensk, aðsókn 27.
Otto: Ein messa, aðsókn 51; 1 barnsskírn.
Auk hins ofangreinda starfs, heimsótti séra Skúli í
ferðum sínum 68 heimili. Síðari hluta ágúst mánaðar starf-
aði hann í Langruth, messaði tvisvar við aðsókn, sem alls
nam 141 manns. Þar fermdi hann fjögur ungmenni og tók
fjörutíu manns til altaris. Einnig skírði hann þar fimm
börn. Fermingarundirbúning á Langruth annaðist séra Rún-
ólfur Marteinsson um tíma áður en séra Skúli kom til
bygðarinnar, og hélt þar guðsþjónustur fyrir Herðubreiðar
söfnuð í Langruth.
í skýrslu sinni til Trúboðsnefndarinnar, gefur séra
Skúli það sem álit si-tt, að í þeim bygðum, sem hann heim-
sótti séu skilyrði og ástæður víðast hvar þannig að áfram-
haldandi trúboðsstarf muni ríkulega blessast.
Annað trúboðsstarf.
Séra Sigurður S. Christopherson hefir eins og undanfarin