Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1929, Blaðsíða 6

Sameiningin - 01.12.1929, Blaðsíða 6
356 veldari til eftirbreytni mörgum, er hans nafn bera. En i því hefir áreiÖanlega veriÖ framför aÖ menn finna til þess betur nú en oft áÖur hve mjög þetta er í ósamræmi viS hina kristilegu hugsjón. Nokkur framför hefir líka orðið í deilum út af óumflýjanlegum meiningamun um kenningu og skipulag kristninnar. Menn eru að finna til þess hve illa fer þar á persónulegum kala og skeytingar- lausri ósanngirni, sem virðist hafa það eitt markmið að svala sinni sínu á mótstöSumanninum. Og það að glögg sé meðvitund um að þetta sé í mótsetningu við kristilegan anda, gefur von um að þetta verði lagfært. Boöskapurinn um frið á jörðu fellur ekki niður, þó menn daufheyrist við honum. Og um jólaleytið ætti að vera hentugur tími til að þokast nokkuð áleiðis í þessu efni. Þá ætti það ekki sízt að þrengja sér inn í meðvitund vora að persónulegur kali og kritur er ekki til hjálpar nokkru góðu málefni, auk þess aS stríða svo mjög í bága við bæði dæmi og kenningu frelsarans. Það er ekki auðvelt fyrir mannlegt eðli að þroskast í þessa átt, en aldrei ættu jólin með boðskap sinn urn frið á jörð að líða hjá án þess að brýna fyrir oss að sá friður á að ná sér niðri einnig í sambandi mannanna innbyrðis. Þetta fær sína heimfærslu nú á ýmsan hátt, en ekki sízt í sambandi við friðarmálin, sem nú eru ofar í hugunr manna en ef til vill nokkru sinni áður. Kirkjan finnur til þess nú eins og hún aldrei áður hefir gert að styrjaldir og styrjaldarandi er ósarn- rýmanlegt kenningu Krists, og að annað hvort verður að víkja fyrir hinu. Samband kirknanna í Ameríku (Federal Council of Churches) Ibendir á styrjaldir sem “megin hindrun þess að hin kristilega hugsjón komist í framkvæmd,” og á viðleitni í þá átt að binda enda á styrjaldir sem höfuðskyldu kristinna manna. Þetta er svo ofarlega í hugum þeirra, sem mest bera fyrir brjósti velferð mannfélagsins, að óhugsandi er að nokkurstaðar geti hljómað Iboðskapurinn um frið á jörð um þessi jól, án þess að það leiði hugina að þessu stóra velferðarmáli alheimsfriðarins og þrengi því að samvizkum krstinna manna að þeir mega ekki leng- ur standa hjá án þess að beita sér í þessu máli, heldur verður kristið almenningsálit að koma fram með slíkum krafti í friðar átt á grundvelli hinnar kristnu lífspeki, að það megi verða hinn öfl- ugasti styrkur og bakhjarl þeirri viðleitni allri í þessa átt, sem nú er efst á baugi í heiminum. “Friður á jörðu.” Hvernig sem vér mennirnir daufheyrumst við þessum orðurn og boðskap þeirra, halda þau áfram að leggja okkur á hjarta að erindi jólagestsins er að koma á friði í rnanns- hjörtunum, friðaranda í sarnbúð mannanna og friði milli þjóða.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.