Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1929, Side 17

Sameiningin - 01.12.1929, Side 17
Barnslundin Eftir Séra Carl J. Olson. Jólin! BlessuÖ Jólin! Hátíð barnanna! HátiÖ englanna! HátíÖ allra, bæði á himni og jöröu! Aldrei fyrnist jóla-guðspjallið! Aldrei þreytast menn á jólahaldinu. Enn á ný er jólagleðin komin í algleyming frá heimskauti einu til annars—í öllum löndum, hjá öllum þjóðum, út um allan heim. En hvað veldur þessum miklu hátíðarbrigðum ? Þeirri spurn- ingu verðuir auSsvarað. Öllum er það deginum ljósara að Jesús —iblessað barnið, sem lá í jötunni í Betlehem, hrindir af stað þessari stórkostlegu hreyfingu á hverju ári. Það er máttur hans og veldi, það er kraftur hans og áhrif í mannlífinu gjörvöllu, sem liggur til grundvallar fyrir þessum alsherjar fögnuði. En verðskuldar hann þetta? Hvað hefir hann gjört? Hvað er hann að gjöra? Hvað mun hann gjöra? Er þessi fögnuður út af engú? Hvað hefir hann gjört ? Þeirri spurningu verSur ekki svarað í einni smágrein. Það er í raun og veru svo margt og mikig að engin tunga er svo mælsk, enginn penni svo snjall, ekkert ímynd- unarafl svo sterkt og engin sál svo stór að hún geti fullkomlega gripið það eða lýst því! Enginn hefir gjört jafnmikið fyrir mannkynið og Jesús. Enginn! Hann brúaði djúpið á milli guðdómsins og mannlífsins með því, að vera bæði guð og maður. í honum mættust þessir tveir lífsstraumar og sameinuðust til eilífðar. 1 Jesú finnum vér guð, og í honum finnur guð oss. 'Hann brúaði líka djúpið mikla, sem syndin hefir skapað á milli hins guðlega og mannlega. Annars vegar er heilagleiki; hins vegar spilling. Enginn nema Jesús gat komið þar til hjálpar. H'ann tók á sig syndina, sektina og hegn- inguna, sem mannkyninu tilheyrði. Fyrir þá sök getum vér kom- ið í blessaðan föðurfaðm guðs, eins og að syndin hefði aldrei verð raunveruleiki hjá oss. Að greiða þannig veg inn í náðarríki drottins, og að gjöra samfélagið við guðdóminn möguilegt og raunverulegt var aðal starf Jesú, en hann hefir haft og hefir enn gegnsýrandi og bless- unarrík áhrif á alt mannlífið hér á jörðunni. Hann hefir upphafið kvenþjóðina og gefið henni þá stöðu og virðingu, sem hún á

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.