Fréttablaðið - 04.03.2011, Blaðsíða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
veðrið í dag
Sími: 512 5000
Föstudagur
skoðun 16
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
2
Æskulýðsdagurinn er á sunnudaginn og verða
guðsþjónustur víða með breyttu sniði. Í Guðríðar-
kirkju verður rokkmessa, í Ástjarnarkirkju U2-messa
og í Digraneskirkju margmiðlunar guðsþjónusta.
Í Glerárkirkju á Akureyri verður fjölskyldu-guðsþjónusta og í Vopnafjarðarkirkju poppmessa.
CUBANO TOAST
Að hætti laundromat Café FYRIR 1
Þ úsundþjalasmiðurinn Friðrik Weisshappel víkkar út veldi sitt á morgun með opnun nýs Laundromat Café í Austurstræti. Fyrir rekur Friðrik tvö samnefnd kaffihús í Kaupmannahöfn við góðar undirtektir og segir nýjustu viðbótina fylgja sömu stefnu.„Hugmyndin er að vera með kaffihús sem kappkostar við að bjóða upp á góða þjónustu, meiri þjónustu en fólk á að ve jh ð
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Cubano toast3 sneiðar svínahnakkicubano-salsa
sýrður rjómi
rauðlaukur
blandað salatfranskar
majóne
Salsagrunnur:20 stk. rauð paprika1 stór dós af tómötum1 msk tómatmauk1 lítil dós chipotle-pipar 2 dl ólífuolía
safi ú fjó
úr. Maukið allt. Í 1 lítra af salsagrunni fara sex smátt saxaðir rauðlauk-ar, tíu saxaðir tómatar (miðjan tekin úr) fersktkó í
Kann betur við mig í uppvaskinu
Friðrik Weisshappel gefur uppskrift af matseðli Laundromat Café sem verður opnað í Austurstræti á morgun.
OPIÐ ALLA DAGA
FRÁ KL. 11.30
föstudagur
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
4. mars 2011
● Listaverk úr s yrtivöru
Á
Sigrún Ben er
er sátt í dr mastarfinu
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Föstudagur
veðrið í dag
4. mars 2011
52. tölublað 11. árgangur
Einfald og vel útilátið
Friðrik Weisshappel gefur
uppskrift af matseðli
Laundromat Café.
allt 1
Gemmér
Cocoa Puffs!
– Lifið heil
www.lyfja.is
kl. 7-1 í Lágmúla kl. 8-24 á Smáratorgi
Hjá okkur er opið alla daga
langt fram á kvöld
Kauptún 3 - Garðabær
s: 533 22 00 - www.art2b.is
Gallery Art 2b
Rýmingarsala
á málverkum hefst
laugardaginn 5.mars
Ótrúlegt úthald
Plötusnúðurinn Margeir
Ingólfsson fagnar 20 árum í
bransanum.
fólk 34
FÓLK Heimildarmyndin Never Say
Never, sem fjallar um söngvarann
Justin Bieber, hefur slegið í gegn á
Íslandi. Yfir 5.000 manns hafa séð
myndina frá því að hún var frum-
sýnd fyrir viku síðan.
Gestirnir, sem eru að mestu
leyti ungar stúlkur, virðast
sýna einkenni Bieber-æðis sem
hefur breiðst hratt út í Banda-
ríkjunum undanfarna mánuði.
Sigurður Victor Chelbat hjá Sam-
bíóunum segir dæmi um að stúlk-
ur komi grátandi út af sýningum.
- afb / sjá síðu 34
Bieber-æði hjá kvenþjóðinni:
Koma grátandi
úr bíósalnum
Þróunarmál fái stað í
þjóðarsálinni
Engilbert Guðmundsson
tók við starfi framkvæmda-
stjóra ÞSSÍ í vikunni.
fólk 12
KÓLNAR LÍTILLEGA Strekkingur
N- og NV-til í fyrstu en lægir smám
saman og horfur á hæglætisveðri
síðdegis. Það léttir heldur til og
búast má við björtu veðri víðast
hvar, einkum við SA-ströndina.
Kólnar í veðri.
VEÐUR 4
3
-2
-2
0
3
LÍBÍA Alþjóðlegi sakadómstóllinn í Genf ætlar að
hefja rannsókn á því hvort Múammar Gaddafí, synir
hans og yfirmenn hersveita í Líbíu hafi gerst sekir
um glæpi gegn mannkyninu með árásum á friðsam-
lega mótmælendur í borgum landsins.
Louis Moreno-Ocampo, aðalsaksóknari hjá dóm-
stólnum, segir að engum verði hlíft hjá dómstóln-
um. „Enginn hefur vald til þess að ráðast á og drepa
almenna borgara,“ sagði hann.
Hann sagði dómstólinn hafa hraðað sér að skýra
frá rannsókn málsins í von um að það fæli ef til vill
yfirmenn hersveitanna frá því að gefa skipanir um
árásir á almenna borgara.
Rannsóknin er gerð samkvæmt heimild Öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna, sem nýverið fól dómstóln-
um að kanna grundvöll málsóknar.
Saif al-Islam, einn sona Gaddafís, sagði í gær að
sprengjuárásirnar á Brega væru bara misskilning-
ur. Ætlunin hefði bara verið að hræða uppreisnar-
menn í borginni, ekki drepa neinn. - gb
Sonur Gaddafís bregst við rannsókn Alþjóðlega sakadómstólsins í Genf:
Segir árásirnar misskilning
VIÐSKIPTI Skiptastjóri félagsins
GH1, sem áður hét Capacent, hefur
farið fram á að efnahagsbrota-
deild ríkislögreglustjóra rannsaki
kaup á rekstri Capacent á Íslandi.
Þykir leika grunur á að veðsettar
eignir hafi verið seldar án heim-
ildar veðsala. Þessu vísa forsvars-
menn Capacent alfarið á bug og
íhuga meiðyrðamál gegn skipta-
stjóranum.
Félag í eigu starfsmanna keypti
í september rekstur og vörumerki
Capacent í kjölfar þess að ekki
tókst að semja um niðurfellingu
á erlendu láni sem hvíldi á fyrir-
tækinu.
Skiptastjóri eldra félagsins,
Guðrún Helga Brynleifsdóttir,
lýsti í nóvember yfir riftun á kaup-
unum og fór í lögbannsmál vegna
notkunar á vörumerkjum félagins.
Þeirri kröfu var hafnað í desemb-
er á þeim forsendum að kaupsamn-
ingurinn væri gildur. Enn hefur
þó ekki fengist botn í aðfarargerð
sem lögð var fram á sama tíma.
Guðrún Helga segir að beðið sé
niðurstöðu í því máli áður en rift-
unarstefnu verði þinglýst.
Capacent sendi út tilkynningu
um málið í nóvember. Þar segir
að rétt hafi verið staðið að kaup-
unum og verðið hafi endurspegl-
að verðmæti hins keypta. Þá hafi
þess verið sérstaklega gætt að
ekki fylgdu veðsettar eignir. Með
kaupunum hafi starfsmennirn-
ir sýnt ábyrgð, því ef ekki hefði
komið til kaupanna hefði rekstur
Capacent stöðvast og um 90 starfs-
menn misst vinnu sína.
Haft var eftir Guðrúnu Helgu í
Morgunblaðinu hinn 19. nóvember
síðastliðinn að fjármunir veðsettir
Íslandsbanka hefðu verið notaðir
til að gera upp við aðra kröfuhafa
þegar gengið hefði verið frá kaup-
unum. Stjórnendur Capacent hafna
því hins vegar og segjast íhuga
meiðyrðamál vegna ummælanna.
Um mjög alvarlegar ásakanir sé að
ræða sem geti valdið fyrirtækinu
miklum skaða. - mþl
Skiptastjóri Capacent
vill lögreglurannsókn
Skiptastjóri telur félag sem keypti rekstur Capacent í september hafa gerst sekt
um skilasvik. Hann hefur farið fram á lögreglurannsókn vegna málsins. For-
svarsmenn Capacent neita því alfarið og íhuga meiðyrðamál gegn skiptastjóra.
STUÐ Í BÍÓ Þær Sara Bjarnadóttir og
Jórunn Lára Ólafsdóttir fóru að sjá nýju
myndina um Justin Bieber í gær.
STUND MILLI STRÍÐA Uppreisnarmenn í Líbíu eru með olíuhreinsistöðina við hafnarborgina Brega á sínu valdi. Í gær geisuðu
harðir bardagar við stöðina þar sem stjórnarherinn reyndi að ná henni aftur á sitt vald. Að átökunum loknum hvíldu þrír upp-
reisnarmenn sig við inngang stöðvarinnar. NORDICPHOTOS/AFP
Grindavík vann KR
Nick Bradford hefur góð
áhrif á lið Grindavíkur, sem
vann KR í Vesturbænum.
sport 30 ÖRYGGISMÁL Mazda hefur innkall-
að um 65 þúsund bíla af tegund-
inni Mazda6 eftir að köngulóar-
vefir fundust í bensíntönkum
nokkurra slíkra bíla. Innköllunin
nær í fyrstu til Bandaríkjanna,
Kanada, Mexíkó og Púertó Ríkó.
Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu
segir að köngulær geti ofið vef í
leiðslur til og frá bensíntankinum
og stíflað loftræstingu. Það geti
valdið slíkum þrýstingi á tankinn
að hann leki og eldhætta skapist.
Fyrirtækinu sé þó ekki kunnugt
um eld eða slys vegna málsins.
Talsmaður fyrirtækisins sagði
að vefir hefðu fundist í tuttugu
bílum. Ekki væri vitað hvers
vegna kóngulærnar klifruðu inn
í Mazda6-bíla frekar en aðra. Til-
vikin væru þó ekki einangruð við
tiltekin svæði í Norður-Ameríku.
- sh
Mazda innkallar 65.000 bíla:
Kalla inn bíla
vegna köngulóa