Fréttablaðið - 04.03.2011, Síða 22
2 föstudagur 4. mars
núna
✽ ekki missa af
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon Forsíðumynd Valgarður Gíslason Útlitshönnun
Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@365.is og Sigríður Dagný
Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
blogg vikunnar
Stríðsmaður
tískunnar
The Glamourai er tísku-
blogg stílistans og hönn-
uðarins Kelly. Þar fjallar
hún um allt sem við-
kemur tísku og starfs
síns vegna er hún mjög dug-
leg að fylgjast með öllu því
helsta sem gerist innan tísku-
heimsins. Þess má geta að
stúlkan sótti tískuvikuna í Míl-
anó í vikunni og var við það
tilefni fengin til að hanna glugga-
útstillingu fyrir verslun Dolce &
Gabbana í Mílanó. Bloggið má finna
á slóðinni www.theglamourai.com.
Tískufíkill
LA-búinn Geri Hirsch heldur
úti blogginu www.because-
imaddicted.net. Á síðunni
birtir hún myndir af því sem
veitir henni innblástur
ásamt myndum úr dag-
legu lífi. Auk þess er
hægt að finna leiðbein-
ingar um hvernig megi
gera stórskemmtilegt
armband úr skrúfum.
Slegið verður upp veislu á skemmtistaðnum Bakk-usi annað kvöld í tilefni kjötkveðjuhátíðarinnar í
Ríó de Janeiro. Kristín Bergsdóttir, Samúel Jón Samú-
elsson og Ragnheiður Maísól Sturludóttir standa fyrir
skemmtuninni og lofa að fylla staðinn af yl og gleði.
Kristín, Samúel og Ragnheiður hafa öll búið í
Brasilíu og hafa mikið dálæti á brasilískri tónlist og
menningu og hefur Kristín meðal annars spilað með
sambahljómsveitinni Tropicalia-sveit Kristínar Bergs-
dóttur frá því vorið 2009. Aðspurð segist Kristín hafa
gengið með hugmyndina í maganum í svolítinn tíma
en ákveðið í janúar að nú væri loks tími til að láta til
skarar skríða. „Ég var úti í Ríó á síðasta ári og upp-
lifði þá stemninguna í kringum kjötkveðjuhátíðina.
Mig hefur lengi langað til að halda brasilíska tón-
listarhátíð hér heima en ekki getað gert upp við mig
hvaða tími mundi henta best til þess. Svo datt mér í
hug að sniðugast væri að halda karnival á sama tíma
og í Ríó, einmitt þegar fólk þarf á smá sól að halda,“
útskýrir hún.
Hún vonast eftir því að fólk mæti klætt í anda há-
tíðarinnar enda sé þetta tíminn til að sleppa fram
af sér beislinu og dansa, syngja og skemmta sér. Á
meðal þeirra sem koma fram eru Tropicalia-sveit
Kristínar Bergsdóttur og Samúel Jón Samúelsson Big
Band. Ragnheiður Maísól verður í hlutverki kynnis og
sögumanns. Skemmtunin hefst klukkan 21.00 og er
aðgangur ókeypis. - sm
Karnivalstemning verður á Bakkusi annað kvöld:
SUNGIÐ, DANSAÐ OG BROSAÐ
SKYNJUNARSKÓLI Sýningin Marglaga er haldin í Kling og Bang um þessar
mundir. Á sýningunni var settur upp skynjunarskóli sem verður starfræktur til 20. mars
þar sem hægt er að vera, melta og fá sér kaffibolla. skipulagðir viðburðir verða á þriðju-
dags- og fimmtudagskvöldum og að degi til um helgar. Allir að kíkja inn og víkka sjón-
deildarhringinn!
U ppboð þar sem listaverk úr snyrti-vörum íslenskra kvenna eru til
sölu stendur nú yfir og rennur ágóði verk-
anna óskiptur til væntanlegs mansals- og
vændis athvarfs sem Stígamót munu starf-
rækja.
Söfnunin hófst á Menningarnótt í
fyrra og söfnuðust eitt hundrað kíló af
snyrtivörum sem nú hefur verið breytt í
skemmtileg listaverk eftir átta hæfileika-
ríkar listakonur. Þórdís Elva Þorvaldsdóttir
stóð að baki söfnuninni og segir hugmynd-
ina upprunalega vera komna frá vinkonu
sinni. „Hún minntist á það eitt sinn að það
gæti verið gaman að safna snyrtivörum ís-
lenskra kvenna því það er í raun hægt að
lesa svo margt í þær,“ útskýrir Þórdís Elva.
„Það eru mjög skiptar skoðanir á snyrti-
vörum, sumir vilja meina að þetta dragi
fram náttúrulega fegurð kvenna á meðan
aðrir vilja meina að snyrtivörur séu hluti
af kynvæðingu kvenna í karllægum heimi.
Það kemur á óvart hvað fólk er í raun með
sterkar skoðanir á snyrtivörum,“ segir hún
brosandi.
Söfnunin var auglýst á Facebook-síðum
og barst þannig frá manni til manns þar
til að fjölmiðlar fengu veður af söfnun-
inni. „Þessi umfjöllun skilaði sér að lokum
því afraksturinn varð rosalegur og ég held
að við höfum safnað um hundrað kílóum
af snyrtivörum. Þegar söfnunin var yfir-
staðin vaknaði sú spurning hvað við ættum
að gera við þennan dásamlega efnivið svo
hann fengi að njóta sín á nýstárlegan og
skemmtilegan hátt,“ segir Þórdís Elva.
Listakonurnar fengu að velja sér vörur til
að vinna úr og gerðu það á mjög ólíkan hátt
og er Þórdís Elva sannfærð um að verðmæti
þessara verka eigi eftir að aukast með ár-
unum. „Þessi verk eru ekki bara merkileg
samtímaheimild heldur er líka verið að
styrkja alveg frábært verkefni,“ segir hún.
Hægt verður að bjóða í verkin í gegnum
vefsíðuna www.litrof.wordpress.com. - sm
Listaverk úr snyrtivörum íslenskra kvenna seld á uppboði:
SKIPTAR SKOÐANIR Á
SNYRTIVÖRUM
Gott málefni Þórdís Elva Þorvaldsdóttir safn-
aði um hundrað kílóum af snyrtivörum sem
átta listakonur breyttu svo í skemmtileg lista-
verk. Verkin verða seld á uppboði á sunnudag.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sól og gleði
Kristín Bergsdóttir stendur fyrir
Karnivalkvöldi á Bakkusi ásamt
Samúel Jóni Samúelssyni og
Ragnheiði Maísól Sturludóttur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hönnuðurnir Guðrún Kristín
Sveinbjörnsdóttir, sem hann-
ar undir heitinu GuSt, og
Erna Óðinsdóttir, sem hann-
ar undir nafninu kurlproject,
hafa snúið bökum saman og
opnað sameiginlega versl-
un við Bankastræti 11. Þar
munu þær selja eigin hönn-
un ásamt fatnaði og fylgi-
hlutum eftir danska hönn-
uði.
Skemmtileg verslun opnuð í Bankastræti:
Snúa bökum saman
Erna Óðinsdóttir, hönnuður.
Sérfræðingur frá Dior kynnir í Hygeu föstudag og laugardag,
nýja Dior Addict varaliti ásamt því að veita ráðleggingar
varðandi húð, förðun og litaval.
Falleg gjöf fylgir kaupum
þegar keyptar eru 2 vörur
í Dior, þar af eitt krem.
Vertu velkomin.
Smáralind s. 554 3960
Kringlan s. 533 4533
Dior kynning föstudag og laugardag
í Hyegu Kringlunni og Smáralind.