Fréttablaðið - 04.03.2011, Blaðsíða 26
6 föstudagur 4. mars
Carine Roitfeld, fyrrverandi rit-sjóri franska Vogue, hefur sent
frá sér sitt síðasta blað og verður
næsta eintak tímaritsins því hug-
arfóstur Emmanuelle Alt, arftaka
Roitfeld.
Mikið hefur verið spáð og spek-
úlerað í hver muni prýða fyrstu
forsíðu Alts og einnig hverju fyr-
irsætan muni klæðast. Nú hefur
verið staðfest að ofurfyrirsæt-
an Gisele Bundchen verði for-
síðustúlkan og að hún muni að
öllum líkindum klæðast flíkum
úr smiðju Dolce & Gabbana. Mörg-
um þykir valið einkennilegt þar
sem Dolce & Gabbana áttu flest-
ar Vogue-forsíður ársins 2010 og
töldu menn líklegra að Alt mundi
kjósa hönnun frá Balenciaga til
þess að reyna að koma á friði milli
franska Vogue og hins fornfræga
tískuhúss. En sýnishorn af nýrri
línu Balenciaga lenti eitt sinn í
röngum höndum eftir mynda-
töku hjá Vogue. Aðrir töldu líklegt
að fatnaður frá Balmain eða Isabel
Marant myndi prýða forsíðuna þar
sem Alt starfaði lengi sem stílisti
fyrir bæði tískuhúsin.
Það verður spennandi að sjá út-
komuna og hvort einhver sjáan-
legur munur verði á blaðinu undir
stjórn Alt, en hennar persónulegi
stíll er mun afslappaðari en hinn-
ar klassísku Roitfeld. - sm
Fyrsta tölublað Vogue undir stjórn Emmanuelle Alt væntanlegt:
Dolce & Gabbana á forsíðuna
Nýjir tímar Fyrsta tölublað Vogue undir ritstjórn Emmanuelle Alt er væntanlegt. Staðfest hefur verið að ofurfyrirsætan Giselle
Bundchen muni prýða forsíðuna. NORDICPHOTOS/GETTY
Veðurguðirnir eru búnir að stríða okkur eyjarskeggjum nokkuð
undanfarnar vikur. Á milli storm-
viðra, haglélja og snjókomu hafa
þeir glatt okkur með svolítilli sól,
logni og léttum rigningarúða. Þess-
ar tíðu veðurbreytingar geta haft
leiðinleg áhrif á húðina sem á það
til að þorna í slíku óveðri. Föstu-
dagur leitaði ráða hjá Maríu Guð-
varðardóttur, förðunarfræðingi hjá
MAC, um hvernig megi halda húð-
inni góðri á meðan svona viðrar.
„Allar konur eiga að eiga hreinsi
sem hentar hennar húðtegund.
Ég mæli með MAC Cleanse Off
olíu fyrir þær sem eru með mjög
viðkvæma húð. Olían breytist í
hreinsimjólk þegar hún blandast
við vatn og hana má nota á augu
líka. Nýja rakakremið Complete
Comfort Crème gefur húðinni
einnig góðan raka og er sérstak-
lega gott fyrir rósroða, það róar
og mýkir húðina,“ segir María
og bætir við að mikilvægt sé að
undir búa húðina vel áður en farði
er settur á. Hún segir góð augn-
krem einnig draga úr þrota og róa
húðina í kringum augun.
„Ég mæli einnig með Brighten-
ing Serum, sem jafnar húðlitinn
og gerir húðina stinna og fína, og
að nota farða sem inniheldur SPF-
vörn og E-vítamín til að vernda
húðina.“ - sm
Passa þarf upp á húðina í tíðum veðurbreytingum:
Verndið húðina fyrir kulda
Complete Com-
fort Créme,
8.390 kr.
MAC
Bright-
ening
Serum,
8.590 kr.
MAC
Cleanse
Off olía,
4.990 kr.
MAC Fast
Response Eye
Cream, 7.190 kr.
SOHO/MARKET Á FACEBOOK
Grensásvegur 16 - sími 553 7300
Opið mán-fös 14–19. Laugd. 12–17
FULL BÚÐ AF
NÝJUM VÖRUM
verð: 7.990
S-M-L
hollur kostur á 5 mín.
Gríms fiskibollur
Ræktendur athugið!
Skráning og upplýsingar
í síma 578 4800 og á www.rit.is
Sumarhúsið og garðurinn
Leiðbeinendur:
Björn Jóhannsson landslagsarkitekt höfundur bókarinnar Draumagarður og
Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur og ritstjóri Sumarhússins og garðsins.
Skipulag og ræktun
í sumarhúsalandi
Námskeið tvö miðvikudagskvöld
9. og 16. mars kl. 19:00-21:30.
Einn, tveir og tré!
Námskeið miðv. 9. mars kl. 17:00-18:30.
Skjólmyndun í garðinum
Námskeið miðv. 16. mars kl. 17:00-18:30.
Námskeiðin eru haldin í Grasagarði Reykjavíkur.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki