Fréttablaðið - 04.03.2011, Síða 29
4. mars föstudagur 9
gmaður hjá Iceland Express og segist vera í
LENDINGIN
SKEMMTILEGUST
Sigrún segist ánægð í starfi og hefur
engan hug á að skipta um starfs-
vettvang í bráð. Hún segir flugmenn
ganga reglulega í gegnum endur-
menntun og að hún þurfi stöðugt að
lesa sér til og rifja upp náms efnið.
„Tækin breytist ört og þess vegna
eru flugmenn í stanslausri endur-
menntun og stöðugum æfingum.
Þá erum við í flughermi og þurfum
að takast á við vandamál eins og
hreyflaleysi, að fá fugl í hreyfilinn
og eldsvoða. Hreyflaleysið er ekki
svo slæmt því maður er vel þjálfað-
ur í því að fljúga vel á einum hreyfli,
það er bara ákveðin tækni.“
Aðspurð segist Sigrún hafa mest
gaman af aðflugi og lendingu og
viðurkennir að hún sé í stöðugri
keppni við sjálfa sig um að ná hinni
fullkomnu lendingu. „Maður er allt-
af að reyna að bæta sig og ná bæði
góðri lendingu og góðu aðflugi. Ég
held að allir flugmenn geri það,“
segir hún að lokum og hlær.
✽
m
yn
da
al
bú
m
ið
Þessi mynd er tekin af mér þegar ég
er rétt rúmlega tveggja ára í fyrstu
íbúðinni sem mamma og pabbi fluttu
inn í á Vesturgötunni í Reykjavík.
Þessi mynd er af mér og
bróður mínum, Axel Bender.
Ég er um átta ára gömul og
hann tveggja ára.
Þarna er ég kannski um sex
ára gömul.
Þarna eru ég og bræður mínir (það rétt sést
í kollana á þeim). Þetta var í fyrsta sinn sem
ég fór inn í flugstjórnarklefa og þarna ákvað
ég að verða flugmaður.
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX
„Þessi leiksýning hefur allt
sem þarf til að skapa vel heppnað
og eftirminnilegt leikverk.“
I.Þ., Mbl.
„Þetta var geggjuð flott sýning,
eins og gelgjan sagði.
Og hvað viljið þið meira?“
B.S., pressan.is „Critics choice“
Time Out, London
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
fim. 12/5 kl. 20 – lau. 21/5 kl. 20 – fös. 27/5 kl. 20