Fréttablaðið - 08.03.2011, Page 19
ÞRIÐJUDAGUR 8. mars 2011 3
Að Ásbrú í Reykjanesbæ er
starfrækt Heilsuhótel Íslands,
sem hefur skilgreint starfsemi
og viðfangsefni hótelsins sem
heilsueflingu fyrir alla lands-
menn. Einnig er boðið upp á
heilsumeðferð með öfluga sýn á
lífsstílsbreytingar auk fræðslu
og hreyfingar alla daga.
Viðskiptavinir eru Íslend-
ingar sem vilja vita meira
um heilsu og hollan lífsstíl,
hvílast í rólegu umhverfi og
njóta þess besta í slökun og
afþreyingu.
Gestir hótelsins koma í
vaxandi mæli frá útlöndum,
meðal annars Noregi og Fær-
eyjum, og dvelja í tvær vikur.
Tveir þessara gesta, þær Sig-
vør Laksá frá Götu í Færeyj-
um og Elisabeth Andersen frá
Osló, veittu blaðinu viðtal um
upplifun sína af hótelinu.
Dvöl mín á Heilsuhótelinu var
upphaf að nýjum og bættum lífs-
stíl. Ég hélt að þegar árin færast
yfir og maður
nálgast fimm-
tugt væri eðli-
legt að sálin
og líkaminn
færi að þyngj-
a s t . E f t i r
meðferðina
gerði ég mér
ljóst að það er
ekki raunin.
Maður verð-
ur einfaldlega að bera ábyrgð á
eigin heilsu. Í dag lifi ég heilsu-
samlegu lífi og er meira meðvit-
uð um hvers líkaminn þarfnast
til að halda sér í formi. Ég ætla
að fara aftur á Heilsuhótelið því
eftir hverja meðferð líður mér
svo vel og læri alltaf eitthvað
nýtt.
Mér finnst ég 15 árum yngri
eftir meðferðina og það jafn-
ast á við lottóvinning!
Sigvør Laksá frá Færeyjum
Ég dvaldi á Heilsuhóteli
Íslands í tvær vikur í júlí
2010. Ég fylgdi prógramminu
og það var frábær upplifun.
Mér fannst maturinn góður
og ég mátti borða eins og ég
vildi af honum. Uppistaðan í
mataræðinu er lífrænt ræktað
grænmeti og ávextir, ýmis
konar te, safar og mikið af
vatni.
Auk mataræðisins er mikil-
vægt að hreyfa sig. Það er
boðið upp á morgungöngur,
teygjur, slökun, eróbikk og
jóga og síðast en ekki síst það
sem hentaði mér frábærlega,
innrauði klefinn, gufubaðið
og heiti potturinn. Einnig er
boðið upp á daglegar ferðir í
heilsulind Bláa lónsins.
Fræðsla er stór þáttur í
meðferðinni, fyrirlestrar af
ýmsu tagi. Mér gafst einnig
tækifæri til að skoða Ísland,
versla í
Reykjavík
og Reykja-
nesbæ. Einn-
ig fór ég í
hvalaskoðun
og á hestbak.
Ég eignað-
ist nýja vini,
Íslendinga,
en einnig
kynntist ég
fólki frá Danmörku, Noregi
og Færeyjum. Þetta var mjög
skemmtilegur tími. Hver var
síðan niðurstaðan? Betri
líðan, andlega og líkamlega,
aukin orka, ég er sjö kílóum
léttari og húðin og hárið í mun
betra ástandi. Þetta var ein-
faldlega frábært ævintýri á
Íslandi.
Elisabeth Andersen frá Osló.
Árangur með heilsueflingu
Það er skoðun mín, í ljósi
aðstæðna á Íslandi, að stjórn-
endur og starfsmenn sem vinna
að velferð og uppbyggingu þurfi
að vera vel vakandi yfir stöðu
og aðstæðum starfsmanna. Sér-
staklega á þetta við um þessar
mundir þegar álag á fjölskyld-
ur og einstaklinga eykst jafnt og
þétt. Þegar fólk er komið í öng-
stræti er oft nauðsynlegt að gera
róttækar breytingar á lífinu, en
þá vantar oft stuðninginn til að
komast af stað.
Reykingar
Það besta sem reykingamaður
getur gert fyrir heilsuna og lífg-
æði sín til lengdar er að hætta
að reykja, en margir hafa gert
margar mislukkaðar tilraunir.
Sumir hafa hreinlega gefist upp
gagnvart vandanum. Lengi hefur
verið rætt um að þörf sé á rót-
tæku úrræði þar sem fólk getur
komist af stað með því að „leggja
sig inn“ í nokkra daga til að hefja
reyklaust líf og fá svo stuðning
áfram í formi eftirfylgni til að
halda það út.
Því miður eru margir sem
þyrftu mest á slíkri lausn að
halda oft illa staddir fjárhags-
lega og því lán að hjá vel flest-
um stéttarfélögum hafa ein-
staklingar aðgengi að sjúkra- og
orlofssjóðum sem styrkja fólk
til heilsueflingar og að breytt-
um lífstíl.
Heilsuhótel Íslands
Ég kanna nú árangur af heilsu-
eflingu og starfi sem fer fram
á Heilsuhóteli Íslands. Í byrjun
júní mun ég fylgjast með tveggja
daga innlagnarnámskeið í reyk-
bindindi sem hluta af því árang-
ursmati.
Valgeir Skagfjörð verður aðal-
leiðbeinandi á námskeiðinu sem
verður haldið í samvinnu við for-
varnaraðila.
Það er óskandi að sem flest-
um gefist kostur á að bæta eigin
heilsu og auka með því lífsgæði
sem eru undirstaða öflugrar
sjálfsmyndar til framtíðar.
Dr. Ásgeir R. Helgason, dósent í
sálfræði og lýðheilsufræði
Reykleysisnámskeið
Valgeir Skagfjörð aðstoðar reyk-
ingamenn við að vinna bug á
nikótínfíkn á námskeiðinu Fyrst
ég gat hætt – getur þú það líka.
Fyrst ég gat hætt – getur þú það
líka. Þannig hljómar yfirskrift
námskeiðs fyrir reykingamenn
sem miðar að því að hjálpa þeim
til að hætta að reykja.
Það er Valgeir Skagfjörð, leik-
ari, tónlistarmaður og fyrrum
stórreykingamaður, sem leiðir
reykingamenn út úr völundarhúsi
blekkinga nikótínfíknarinnar.
Valgeir skrifaði bókina ,,Fyrst
ég gat hætt ...” fyrir nokkrum
árum í kjölfar þess að hafa í
nokkur ár verið að aðstoða reyk-
ingamenn við að ná árangri við
að hætta reykingum. Nú ætlar
Valgeir að halda nýtt námskeið
í samvinnu við Ásgeir Helgason
og Heilsuhótel Íslands, Ásbrú í
Reykjanesbæ.
„Fyrst og síðast er það hugar-
farið sem reynist reykingamönn-
um fjötur um fót. Þeir eru, eins
og ég var árum saman, fastir í
vef blekkinga sem heldur þeim í
þeirri trú að reykingarnar séu að
gera eitthvað fyrir þá. Þeir upp-
lifa slökun, félagsskap, vellíðan
og einhvers lags fullnægjutil-
finningu í hvert skipti sem þeir
kveikja sér í, en á sama tíma óska
þeir þess heitt og innilega að geta
losnað við þennan óþverra. Með
öðrum orðum; – reykingamenn
vilja hætta að reykja en þeir vilja
líka halda áfram að reykja.
Og vegna þess að þeir vilja
halda áfram þá skilja þeir ekki
hvers vegna þeir geta ekki hætt.
Eftir stendur að þegar þeir hafa
tekið ákvörðun um að hætta
verður til sú hugsun að þeir séu
að fórna svo miklu. Þeir vita ekki
nákvæmlega hvað það er sem þeir
fórna, en af því hugsunin snýst
um fórn er fylgifiskur þeirrar
hugsunar að í hvert skipti sem
það hvarflar að þeim að reykja þá
fyllast þeir tómleikatilfinningu og
finnst að þar með hljóti þeir alltaf
að vera að missa af einhverju.
Námskeiðið mitt hjálpar reyk-
ingamönnum að komast út úr
þessari blekkingu og um leið og
sannleikurinn rennur upp fyrir
þeim þá verða þeir frjálsir.“
Í umsögnum aftan á bókarkápu segir
meðal annars:
,,Þetta er stórfróðleg og skemmtileg bók.
Hún logar á milli fingranna og ég er viss
um að hún getur slökkt í stærri stubbum
en mér.”
- Einar Már Guðmundsson,
rithöfundur
Ummæli eftir námskeið:
,,Eins og flestir reykingamenn var ég sífellt
að hætta að reykja. Mér tókst hins vegar
aldrei að standa við ákvörðunina fyrr en ég
fékk vopn sem dugðu til að sigrast á hinum
ótrúlegu blekkingum nikótínfíknarinnar.“
Heilsuhótel Íslands
Heilsuhótel Íslands er regnhlíf fyrir þá sem eru að vinna að lífsstílsbreytingum. Árið 2011 verður frábært.
Kynning
Ný námskeið í hverjum mánuði
● Heilsudvöl á Heilsuhótelinu
býðst í hverjum mánuði sem
tveggja vikna meðferð en einnig
er mögulegt að nýta hótelið og
þjónustu þess yfir helgi til hvíldar
og slökunar.
● Næsta heilsunámskeið er
11.–25. mars en síðan 15.– 29.
apríl sem nær þá yfir páskana.
● Flest stéttarfélög, sjúkra–
og fræðslusjóðir styðja
við félagsmenn vegna
lífsstílsbreytinga og fræðslu
á hótelinu. Þá eru félög að
hugleiða að bjóða upp á dvöl
á hótelinu sem tækifæri til
orlofsdvalar en hótelið er opið
allt sumarið.
Upphaf að
betra lífi
Ævintýraleg
lífsreynsla
Sigvør Laksá
Elisabeth Andersen
Valgeir Skagfjörð hjálpar reykingamönnum að sigrast á fíkn sinni.