Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1924, Blaðsíða 4

Sameiningin - 01.04.1924, Blaðsíða 4
98 Páska-hugleiðingar. Eftir séra Hjört J. Leó, M.A. I. “í upphafi skapa'Öi guÖ himin og jörS...og guð sagÖi: Veröi ljós, og það varð ljós.” Síðan er liðinn langur timi, líklega margar miljónir ára. En guð kveikti ljós þegar í öndverðu. Það var hans fyrsta verk. Því “guð er ljós, og ekkert myrkur er í honum.” Hann hlaut að skapa ljós vegna þess, aS hann cr Ijósið. Fyrir Jesúm fengum vér ljós. Hann er orsök alls. “Oröið var guð. Allir hlutir eru fyrir það gjörðir.” Virðum fyrir oss það ljós, semj hann kveikti fyrst. — Það ljós er sýnilegt tákn máttar hans og vits. Þúsundir ára líða. Maðurinn, þessi dægurfluga, sem lifnar í dag og hverfur á rnorgun, undrast mátt ljóssins, tilbiður höf- und þess, gleöst við yl Ijóssins—og deyr. Öld eftir öld mæna kynslcSirnar til hæða, — og hverfa. Öld eftir öld fæðast þær og deyja, og sjá að eins “bleikan skugga guðdómsins,”—eigi sjálfan hann. Flvað er heil kynslóð, hvað er einn mannsaldur? “Eitt eilífðar smáblóm, með titrandi1 tár, sem ttlbiður guð sinn, og deyr.” Ljósið sýnilega, tákn, hins guSlega máttar, berst á öldum ljósvakans með i86,oœ milna hraða á sekúndu. Þó þarf það tugi ára til að berast frá stjörnunum til vor. Oss sundlár, er vér reynum að gera oss grein fyrir tima og rúmi. Og er stjörnurnar benda á oss geislafingrum sínum, flytja þær oss boðskapinn um almætti guðs. Hver geisli er heil prédikun, ef vér fáumst til aö opna augun. Hvílíkt vit! Hvílíkt 'lögmál, hvílík regla! Öld eftir öld þræða þessi vitni 'guSs sínar mældu brautir, og skeika ekki um þumlung eða sekúndu. Og ákveðiS lögmál bendir á löggjafa. Það er heimskinginn mesti, sem segir í hjarta sínu: “Það er enginn guð.” II. Þegar guö skóp manninn, sagði hann aftur: “Verði ljós!” Og ljós skynseminnar varð til. Vér hugsum um sjálfa oss, — um mannkyniS. Hve undur litlir og máttvana, mold og loftagnir. Dýr, sem þráir aS lifa og

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.