Sameiningin - 01.04.1924, Blaðsíða 21
115
HELREIÐIN.
Saga eftir
SELMU LAGERLÖF.
Kjartan Helgason þýddi.
I.
ÞaS er upphaf sögu þessarar, að lítil stúlka lá fyrir dauðanum.
Hún hét Jódís og haföi verið “systir" við ræfilmenna-hæli Hjálp-
ræðishersins.
Hiin hafði fengið lungnatæringu svo bráða og svxsna, að ekki
varð viðnám1 veitt, nema eitt ár. í lengstu ,lög hafði hún verið á
ferli og gegnt vana-verkum sínum. Bn þegar mótturinn var alveg
á þrotum, var hún send í heilsuhæli. Þar var henni hjúkrað nokkra
mánuði; en henni batnaði ekki. Og þegar hún sá loksins, að öll lífs-
von var úti, fór hún heim til móður sinnar. Hún átti heima í hús-
kytru, sem hún sjálf átti, í einu úthverfi borgarinnar. (Þar lá nú
Jódís j rúminu' sinu, í sama litla herberginu, sem hún hafði sofið i
áður, meðan hún var barn og heimasæta. Nú beið hún þar dauða
síns.
Móðir hennar sat við rúmistokkinn, hnuggin og kviðin, en grét
þó ekki. Hún gaf sér ekki tóm til þess. Hún var alt af að hjúkra
og hagræða dóttur sinni. Þar var ihugurinn allur við.
■Við rúmgaflinn til fóta stóð önnur “systir”, María að nafni,
stallsystir Jódísar, og grét í hljóði. Hún horfði framan í Jódisi
með jniíkilli ástúð og hafði ekki augun af henni, nema þegar þau
fyltust tárum, og flýtti hún sér að þurka þau af.
Stóll var hjá rúminu, lítill og lélegur. Jódís hafði haft miklar
mætur á honum og flutt hann með sér, hvert sem hún fór. Á hon-
um satvnú kona, mikil vexti. í hálsmálið á kjólnum', hennar var
saumað stórt S.*) Hún hét Anna, og var höfuðsmaður í Hjálp-
ræðishernum. Henni hafði verið boðið annað betra sæti, en hún
fékst ekki til að skifta um; rétt eins og það væri gert sjúklingnum
til þægðar, að sitja á þessum stólgarmi.
Þetta var á gamlárskvöld. Úti var idumbungs-veður og þykt
í lofti. Þeim fanst kalt og hráslagalegt, er inni sátu. En ef út var
komið, fanst veðrið vera furðu milt og mollulegt. Jörðin var auð
og aldökk. Ein og ein hvít flyksa féll í hægðum sínum niður á
jörðina, en varð að vatni, er niður kom. Úrkomulegur var hann,
en hékk þó þurr, að kalla. Viindur og snjór virtust ekki nenna að
*) Merki Hjálpræðishersins.