Sameiningin - 01.08.1924, Qupperneq 3
ftlánaðarrit til siuðnings kirkju og lcrisiindómi íslendinga
gefiff út af hinu ev. lút. lcirkjufélagi ísl. i Vestrheimi
XXXIX. árg. WINNIPEG, AGÚST 1924
No. 8.
Prédikun orðsins.
Fimtíu ára minning íslenzkrar prédikunar í Yesturheimi,
1874 — 1924.
(Prédikim ílutt á kirkjuþlngi 22. júní 1924,
af séra Birni 11. Jónssyni, D.JX)
BÆN.
Drottinn, þú hefir veriö oss athvarf frá kyni til kyns.
ÁÖur en fjöllin fæddust og jöröin og heimurinn urðu til, frá ei-
lifð til eilífðar ert þú, ó Guð. Þúsund ár eru í þínum augum
sem dagurinn í gær, þá hann er liðinn. Kenn oss að telja daga
vora, að vér megum öölast viturt hjarta. Snú þú aftur, Drott-
inn, og aumkast yfir þjóna þina. Metta oss að morgni með mis-
kunn þinni, að vér megum fagna og gleöjast alla daga vora. Lát
dáðir þínar birtast þjónum þínum og dýrð þína hörnum þeirra.
— Vér lofum þig, heilagi Guð, fyrir það, að þú hefir látið loga
á lampa þínum hjá oss í fimtíu ár. Vér þökkum þér fyrir
þjóna þína, er þú sendir til vor í öndverðu með GuSs örk náð-
arboðskaparins og fyrir það, að þú hefir viöhaldið prédikun
þíns heilaga orðs á meðal vor fram á þennan dag. Blessa þú
oss öllum þessa minningar-stund, heilagi faðir, i Jesú nafni.
Amen. . ,
TEXTl.
Og orö frá Drotni var sjaldgæft á þeim dögum; vitranir
voru þá fátíffar. Þá bar svo til einn dag, þá ef Elí svaf á sínum
vanalega stað, og enn var ekki sloknað á Guffs lampa, en Samúel
svaf í musteri Drottins, þar sem Guðs örk var, að Drottinn
kallaði á Samúel og hann sagffi: Hér er eg.—I. Sam. 3, 1-4.
Kristnu tilheyrendur! Guðsþjónusta þessi á að vera helguð
minningunni um hina fyrstu prédikun, sem flutt var á íslenzka
tungu í Vesturheimi, nú fyrir fimtíu árum.