Fréttablaðið - 23.03.2011, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 23.03.2011, Blaðsíða 44
23. MARS 2011 MIÐVIKUDAGUR28 ● fréttablaðið ● fermingar Börn með þroskahömlun gera Jesú að ævilöngum vini á fermingardaginn. „Áður fyrr var undir hælinn lagt hvort börn með þroskahömlun fermdust, og í starfi mínu hef ég talað við margt aldrað fólk sem svíður sárt að hafa ekki fengið að fermast af því það gat ekki lært kverið sitt og var kannski ekki læst. Við þurfum ekki að vera læs til að eiga Jesú að vini. Við þurfum bara að vera læs á hjarta okkar og um- hverfi,“ segir Guðný Halldórsdóttir, sem starfað hefur sem prestur fatl- aðra frá árinu 1990 og þjónar sér- staklega einstaklingum með þroska- hömlun. „Ég nýt ríkulegra forréttinda í starfi mínu og ef einhver hefur lært mikið á þessum tíma er það ég, bæði hvað varðar viðhorf, hug- rekki, þolin mæði, vináttu og hvað þau eru dugleg að líta eftir hvert öðru,“ segir séra Guðný, sem ár- lega fermir á milli 20 og 30 þroska- hamlaða unglinga. „Fermingar fatlaðra fara alfarið eftir aðstæðum hvers og eins barns, og ekki til nein ríkisleið þar. Stærsta fermingin fer fram á sumar daginn fyrsta, með nemendum Öskjuhlíðar- skóla og Safamýrarskóla, en þroska- hömluð börn í sérdeildum grunn- skólanna fermast oftast með sínum bekk og þá kem ég inn í ferm- inguna með sóknarpresti. Öðrum hentar ekki að vera í hópi og eru þá fermd ein og sér, en einnig fermi ég heima hjá sumum barnanna,“ segir séra Guðný, sem er með ferming- arfræðslu í fimm skólum og hittir fermingarbörn sín einu sinni í mán- uði í fermingarkirkjunum til að gera þau heimavön þar. „Í fermingarfræðslunni fylgi ég námskrá Þjóðkirkjunnar en nota annað tungutak og nálgun. Allan veturinn geng ég út frá vinahug- takinu og tala um Jesú sem vin, því öll vitum við hvað vinir eru og hve miklu skiptir að eiga vin og vera vinur. Þegar kemur að fermingar- spurningunni á fermingardaginn spyr ég því ekki: „Viltu gera Jesú Krist að leiðtoga lífs þíns?“ heldur „Viltu vera vinur Jesú alla þína ævi?“, og það skilja þau vel,“ segir séra Guðný og bætir við að dásam- legt sé að fylgjast með börnum í fræðslunni þar sem þau deila upp- lýsingum og fræðslu sín á milli, allt frá því hversu marga lítra af rjóma þarf í fermingartertuna yfir í spennandi skammtímavistunar- úrræði. „Hálfan veturinn fikrum við okkur áfram um hvernig við ætlum að hafa ferminguna. Börnin velja sjálf sálmana, utan eins sem ég fæ að velja, og svo hafa mörg þeirra sérþarfir sem þarf að taka tillit til. Þannig hef ég fermt barn sem ekki vildi sitja til altaris með hinum heldur úti í sal þar sem það hafði átt sæti í kirkjunni áður og sat þá bara þar, og svo annan sem gat ekki hugsað sér að taka ofan der húfuna sem hann tók bara ofan þegar hann svaf, og þá var hann með húfuna sína á fermingar daginn,“ segir séra Guðný um gefandi og skemmtilegt starf sitt. „Fermingardagur er sannarlega mikill dagur í lífi barns og við leggj- um okkur fram um að gera hann sem bestan. Sem sóknarprestur hef ég samanburð á því að þroska- hömluð börn eru ekkert öðruvísi en aðrir unglingar þegar kemur að til- hlökkuninni og þau pæla í fötum, gjöfum, hárgreiðslu og veislu, en það sem einkennir öll fermingar- börn, fötluð eða ekki, er hversu ein- læg þau eru á fermingardaginn og hversu mikilvægur hann er þeim öllum.“ - þlg Gullmolarnir Í LÍFINU Hér fermir séra Guðný Halldórsdóttir fermingarbarnið Ragnar Vilberg Bragason. Hún segir einstakt að upplifa gleði dagsins með börnunum og fjölskyldum þeirra, þar sem þörfum hvers og eins barns sé ávallt mætt. MYND/JAK MINNA BRUÐL. MEIRA TAL. INNILEGAR HAMINGJUÓSKIR Á FERMINGARDAGINN FERMINGARTILBOÐ HTC WILDFIRE 56.900 KR. 12.000 kr. frínotkun fylgir með FERMINGARTILBOÐ NOKIA X3-02 28.900 KR. 12.000 kr. frínotkun fylgir með FERMINGARTILBOÐ NOKIA C3-00 24.900 KR. 12.000 kr. frínotkun fylgir með
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.