Sameiningin - 01.03.1920, Page 1
Mánaðarrit til stuðnings hirlcju og kristindómi íslendinga
gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi ísl. í Vestrheimi
XXXV. árg. WINNIPEG, MARZ 1920 Nr. 3
Fyrir mig dóst þú drottinn minn!
Fyrir mig dóst þú, Drottinn minn,
dauðann allan barstu.
Fyrir mig dundi drevri þinn,
dýrðar-fórn mín varstu.
Fyrir mig streymdi lífs þíns lind,
laugast svo að mætti’ eg.
Fyrir mig bættir brot og svnd,
barnarétt svo ætti’ eg.
Fyrir mig dóst þú, Drottinn minn,
“að deyja syndin mætti ’ \
Fyrir mig dóst, að dauði þinn
dauðann allan bætti.
Fyrir mig dóst, að devja hér
dauða vér ei köllum.
Fyrir mig dóst, að dauðinn mér
dyr sé að þínum höllum.
Fyrir mig dóst þú, Drottinn minn,
dauðinn líf svo veitti.
Fyrir mig dóst, að dauði þinn
dauða’ í lífið breytti.
Fyrir mig dóst, að dauðinn hér
dýrðarlífs sé stígur.
Fyrir imig dóst, að dagslok mér
dýrðar- verði sigur.
N. S. Th.