Sameiningin - 01.04.1920, Blaðsíða 30
126
Hver varð svo afleiðingin? ísrael náði aftur borgum þeim, sem
Filistar höfðu áður tekið af þeim, í fjöllunum að vestan. Og
í ilistar náðu ekki aftur eins algjörri yfirhönd yfir þjóðinni á
meðan Samúel lifði. 8. Hvað gjörði Samúel eftir þenna sigur?
Reisti stein á bardagasstöðvunum til minningar um sigurinn
og hina dásamlegu hjálp Drottins. Eftir þennan sigur var
Samúel dómari ísraels og leiðtogi fram á elliár. 9. Hvað lær-
um við af sögu þessari? a. ísraelsmenn tóku aáttmálsörkinni
tveim höndum, þegar !hún kom til ibaka. pó héldu þeir áfram
að dýrka skurðgoð. Og ánauð Filista linti ekki í tuttugu ár.
Viljir þú hjálp Drottins, þá gef honum hjarta iþitt óskift. b.
Samúel var helgaður Guði frá blautu barnsbeini, alinn upp í
helgidómi Guðs. Nú var hann orðinn mikill maður, sem leiddi
þjóð sína á réttan .veg og til frelsis aftur. Hér sjáum við, hvað
ágætt það er, að læra að elska Guð á æskuárunum. c. Við sjá-
um á þessari sögu, hvað miklu bænir góðra manna koma til leið-
ar. d. ísraelsmenn sýndu fyrst ávexti iðrunar sinnar með því
að brjóta skurðgoðin. Síðan leituðu þeir hjálpar Drottins og
fengu hana. Sýnum einlægni og alvöru, þegar við leitum
Drottins. e. Filistar réðust á ísrael undir eins, þegar þeir
heyrðu um afturhvarf þetta. En það varð til þess, að þeir voru
því fljótar sigraðir. Við megum búast við árásum, ef við höld-
um trygð við kristindóminn, en það er aldrei ilt, að vera ofsókt-
ur fyrir það sem rétt er. f. Guð notar oft náttúruöflin á dá-
samlegan hátt til þess að frelsa fólk sitt, eins og hér. g. peg-
ar ísraelsmenn báru örkina fram í bardaga, en iðruðust ekki
synda sinna, þá biðu þeir ósigur. En þegar þeir lögðu til or-
ustu með hreinsuð ihjörtu og skildu örkina eftir á sínum stað,
þá unnu þeir frægan sigur, með hjálp Drottins. Helgir dómar
eru góðir á sínum stað, en þeir veita enga hjálp, þegar hjartað
er ekki rétt gagnvart Guði.
VIII. LEXÍA. — 23. MAÍ.
Fyrsti konungur ísraels—1. Sam. 9, 15—21; 9, 25—10, 1.
Minnistexti: Óttist aðeins Drottin og þjónið honum trú-
lega af öllu hjarta yðar — 1. Sam. 12, 24.
1. Hvernig hafði stjórnarfar Israels verið fram að þessum
tíma? peir höfðu engan allsherjar þjóðhöfðingja haft, nema
dómarana, er voru leiðtogar þjóðarinnar og dæmdu í málum
manna. 2. Hver var síðasti dómarinn? Samúel spámaður.
3. Hvernig fór, þegar hann tók að eldast? pá fóru synir hans
að gegna dómarastörfum, en komu sér illa við fólkið. Tók þá
ísrael að biðja um konung yfir sig. 4. Hvernig tók Samúel í
það? Hann hélt, að það væri ekki gott fyrir þjóðina. En Guð
sagði honum að gjöra eins og ísrael vildi. 5. Hver var Sál?