Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.04.1913, Qupperneq 5

Sameiningin - 01.04.1913, Qupperneq 5
37 og sýnir, livernig livortveggja tilfinningin heyrir til læri- sveinunnm: Sársauki hafandi í för með sér sælu, sem svo er löguð, að í lienni gleymist sársaukinn. Og loforð sín liin miklu krýnir hann með því að gjöra oss það ljóst, sem er dýpsta undirrót fagnaðar vors: „Eg mun sjá yðr aftr' ‘, og með þeirri yfirlýsing, að sá fögnuðr sé að engu leyti kominn undir neinu liið ytra, og að enginn óvinr geti rænt honum: „Enginn tekr fögnuð yðvarn frá yðr.‘ ‘ Trúarlíf kristins manns blasir þá liér við frá meir en einu sjónarmiði, sem vert er fyrir alla að veita eftirtekt vandlega: I. Fyrst er heitið fögnuði, sem er ummynduð sorg. „Hryggð yðar mun snúast í fögnuð.“ Þessi orð er ekki aðeins svo að skilja, að önnur tilfinning komi í stað hinnar, heldr svo, að það, sem áðr var hryggð, verði síðar að fögnuði. Með þessu getr aðeius verið átt við það, að það, er fyrst var orsök hryggðar, verði síðar orsök fagn- aðar. Það að spádómr þessi rættist svo sögulega og bein- línis stafar auðvitað af þeim tvennu sundrleitu afleiðing- um, sem kross Krists hafði fyrir þjóna hans. Þrjú dimm dœgr liðu svo yfir þá, að kross hans var þeim uppspretta sorgar, ótta og örvæntingar; en er hið mikla sögu-undr upprisunnar svo allt í einu ljómaði inn-í sálir þeirra, brá svo við, að það, sem leitt hafði yfir þá hina djúpu sorg, vonlausa með öllu að því er virtist, varð þeim á einni svip- stundu uppspretta frábærs unaðar, er meiri var en nokk- uð, sem þá hafði áðr dreymt um að til gæti verið, upp- spretta óþrotiegrar, eilífrar gleði. Kross Krists, sem nokkrar klukkustundir hafði valdið þeim harmkvæla og nálega gjört xít-af við þá, hefir ávallt síðan verið þunga- miðja dýpsta fagnaðar og sterkasta trausts óteljandi kyn- slóða. Naumast þarf að minna neinn kristinn mann á það, hve mikið er varið í j)etta atriði, breyting þá hina skyndi- legu og algjöru, sem varð á hugsunum og tilfinningum hins litla lærisveina-lióps við ])að, er þeir sannfœrðust um að Jesús væri risinn upp frá dauðum, — hvílíkt sönnunar- gildi í því er fólgið guðspjalla-sögunni til staðfestingar. Hvað var það, sem lyfti þeim upp-úr hyldýpi myrkrsins ? Hvað var það, sem á einu augabragði kollvarpaði hug-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.