Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1914, Blaðsíða 46

Sameiningin - 01.07.1914, Blaðsíða 46
158 Ástæðan fyrir því, að kirkjan nú á dögum er sumstaðar búin að rnissa sjónar á höfuðsannindum kristindómsins, er vafalaust sú, að hún þar var hætt að gera skyldu sína. Fari svo, að vér ekki gerum skyldu vora, verða sannindi guðs frá oss tekin og vér höfum þá ekki lengur neitt hlutverk að vinna. Slíkt ætti ekki með nokkru móti að geta komið fyrir. Guð forði oss frá þeim örlögum! Guð forði oss frá þeim örlögum, segi eg, ekki vegna þess, að þá værum vér sem félag úr sögunni, því þegar vér værum hættir að gera skyldu vorá mættum vér gjarnan missa oss, heldur vegna hins, að hlutverk vort, að flytja náðarboðskapinn hverju íslenzku mannsbarni hér vestra, yrði þá óunnið. Litum á þetta hlutverk vort, gefið oss og fengið ; hendur af guði, sem skyldu. Biðjum hann svo í Jesú nafni um hjá p í starfinu öllu- Þá getur ekki hjá iþví farið, að vér verðum til mikils góðs íslenzkum bræðrum vorum og svstrum og þar með guðs ríki yfirleitt á meðal vor. Minnist eg í þessu smbndi orða nokkurra, sem mér þykir vænt um. Þau eru eftir Theodore L. Cuyler, einkar góðan mann, sem var prestur í Brooklyn, N. Y., og er látinn fyrir öríáum árum, Orðin eru þessi: “Guð sendir æfinlega hjálparengil þeim, sem viljugir eru að gera skyldu sína.” Sé það skylda vor. og um það er eg ekki í ncKkrum vafa, eins og nú stendur á hjá oss, að fara með kristindómsfcoðskapinn inn á hvert íslenzkt heimili hér vestan hafs, og vér gerum þá skyldu, mun guð senda oss þá hjálparengla sem vér þurfum, jafnframt og verkið er unnið. Eitt vil eg hér minnast á. Slík starfsemi sem þessi, slík bjarg- ráð, er ekki óþekt í lúterskri kirkju. Vel man eg eftir því, að eg heyrði dr. Gerberding, einn af mestu ágætismönnum kirkju vorrar nú á dögum og kennara við prestaskólann lúterska í Chicago, oftar en einu sinni minnast þess með hjartanlegri gleði og fögnuði, að Hann hefði tekið þátt í svona starfi. Dr. Gerberding var þá ungur maður. Leiðtoginn í verkinu var dr. Passavant, ágætismaður hinn mesti, þá nokkuð roskinn, en ern og vel hraustur og fullur af heilög- um áhuga fyrir málefni guðs rikis. Þeir dr. Gerberding og hann ferðuðust saman bæ frá fcæ um bygðarlög í Pennsylvania cg fluttu náðarboðskapinn á hverju heimili þar sem þeir komu. Sagðist dr. Gerberding aldrei hafa verið í slíkum skóla á æfi sinni eins og þeim, er hann var í á þessu ferðalagi með dr. Passavant. Sagði hann, að sér yrði alla æfi minnisstætt, þegar þeir félagar hefðu kropið í l:æ:i til guðs í Jesú nafni, á brotnum gólfunum í kofum nýbyggjanna. biðjandi um blessun guðs og sáluhjálp heimilisfólkinu til handa. Kvað hann slíkar ferðir hafa verið verulega blessunarríkar, bæði starfsmönnunum sjálfum og heimilisfólkinu þar sem þeir komu. Kirkjur voru tiltöluleg fáar austur þar í þá daga og messur fremur strjálar. En að messunt þeirra félaga þyrptist sá múgur manna á hverjum sunnudegi, að dæmafátt mátti heita. Hefir því vafalaust valdið að nokkru leyti vakning sú, sem fólk varð fy^rir við guðs- þjónustur þær, er áður höfðu fram farið á heimilunum. Tvent þarf maður að hafa til að bera til að koma nokkru til leiðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.