Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.07.1914, Page 60

Sameiningin - 01.07.1914, Page 60
172 NokkuS var rætt um viðhald íslenzkrar tungu hjá æskulýðnum, og lagði séra Guttor.mur Guttormsson það mál fyrir þingið. Æski- legt taldi hann, að Bandalögin gengust fyrir íslenzku-kenslu, e'ns og sumstaðar hefði verið gjört. Var séra Guttormi falið að leið- beina Bandalögunum í því efni á komanda ári. Á það var minst, að séra Friðrik Friðriksson hefir í hyggju að gefa út nýtt sálmakver til notkunar fyrir kristilegu ungmennafélögin á íslandi, og kom til tals, að hyggilegt gæti verið fyrir Bandalögin að fá að vera i samvinnu með þá útgáfu að einhverju leyti, en ekkert var samt fastráðið í því efni. Einnig kom það til tals, að hyggilegt myndi vera fyrir Banda- lögin að gangast fyrir stofnun kristilegs félagsskapar meðal ófermdra unglinga, er yrðu nokkurskonar yngri deildir Bandalaganna; myndi það bæði verða til uppbyggingar fyrir börnin, og um leið yrði það þeim hvöt til þess að taka seinna þátt í Bandalagsstarfinu. Á það mál .verður seinna aftur minst í þessarri deild blaðsins. Næsta þing var ákveðið að halda að ári í sambandi við kirkju- þingið, sem verður i Winnipeg hjá Fyrsta lút. söfnuði; en jafnframt var eindregið óskað eftir því, að til þingsins gæti fengist nokkuð ríf- legri tími en verið hefir, helzt seinni hluti dags allur og kveld. Síðari fundurinn var haldinn kl. 8 að kveldi. Þá flutti séra Friðrik Friðriksson, sem var heiðursgestur þingsins, erindi. Hann hefir í vetur og vor heimsótt Bandalögin i íslenzku söfnuðunum í Minnesota, Norður Dakota, Winnipeg og Argyle-bygð, og dvöl hans á þessum stöðum öllum orðið Bandalögunum og söfnuðunum til mik- illar ánægju og blessunar. Hann benti á það, er honum hafði helzt fundist ábótavant í félagsstarfinu, og gaf ýmsar ráðleggingar því viðvíkjandi. Hann flutti einnig bróðurkveðju frá félögunum heima á íslandi- — Urðu allmikar umræður út af erindi hans, og sömuleiðis svaraði hann spurningum, er fyrir hann voru lagðar. Var þessi fundur uppbyggilegur mjög og ánægjulegur í alla staði, og svo vel var hann sóttur. að tekið var hvert sæti í kirkjunni. Söngflokkur Gimli-safnaðar söng kórsöng og O. Anderson frá Baldur einsöng. Þinginu var slitið kl .lOý^ e.h. með sálmasöng og bænagjörð, er séra Fr. Friðriksson stýrði. Frá Austurlöndum. K.F.U.M. í Kína.—í Chengtu í Kína vestariega er Kristilegt fé- lag ungra manna að koma sér upp félagshúsi, og hafin fjársöfnun til þess fyrirtækis' Á aðfangadag jóla síðastliðinn var safnað tæpum 38 þúsundum dollara af þeim 50 þúsundum, sem átti að safna. Eftir- tektavert er, að landstjórinn í því héraði og yfirmaður herliðsins þar

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.