Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1915, Page 9

Sameiningin - 01.04.1915, Page 9
41 npprisu Jesú, liljóta að neita, eða vefengja, helming npprisu-frásagnanna eða meira. — En livar er þá trygg- ingin fyrir því, að liinn hlutinn sé rétt skráður % 9. Að frásögnin um upprisuna stríði á móti “hinu náttúrlega”, og hljóti því að vera heilaspuni. Svar: (a) Enginn maður getur gert fullan grein- armun á “náttúrlegu” og “yfirnáttúrlegu.” Guði er alt “náttúrlegt”, því hann megnar alt. (b) Bindi menn sig fasta við það fyrir fram, að alt sé ósatt, sem er “yfirnáttúrlegt”, en brjóti svo heil- an um upprisu Jesú, er slíkt að hugsa í liring,—petitio principii,—og er mjög óvísindalegt. (e) Náttúruvísindin sanna ekki upprisuna, en þau sanna ekki lieldur hið gagnstæða. Þau geta ekkert um það sagt, hvort liér kom fyrir óvenjulegt atriði, sem braut bág við liið venjulega, eða ekki. Þau geta að eins lýst ])ví venjulega. Hér er því að eins um söguleg rök að ræða. (d) Guð er höfundur náttúrulaganna og stjórnari —ekki þjónn þeirra, heldur lierra. Hann er liafinn yfir ]>að, að vera þeim háður, þó mennirnir sé það. Hann getur og breytt til eftir vild. Hafi hér verið um guðlegt afl að ræða, — eins og vér kristnir menn trúum, — kom- ast engar umræður um “náttúilegt” eða “ónáttúrlegt” að. Hann er lierra ;\lls. “Hann talaði og það skeði.” (e) Oft segja menn: Ef frásögn um það birtist nú á dögum, að dauður maður liefði risið upp líkamlega, myndi því ekki verða trúað. Og ef liann gerði krafta- verk, myndu þau álitin sjónliverfingar. Þetta er fjar- stæða. Þeir, sem hefðu séð manninn deyja, og svo séð hann upprisinn, myndu segja: “Drottinn minn og Guð minn.” Yitundarvottar geta ekki annað en trúað. Saga hinnar fyrstu kristni myndi endurtaka sig. Hitt er vitanlegt, að nú á dögum myndu menn verða eins tregir að trúa því undri, eins og postularnir fvrrum. Þeir sáu, og efinn hvarf. III. Hvaða ályktanir er rétt að draga af páska-boð- skapnnm ?

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.