Sameiningin - 01.04.1915, Blaðsíða 27
59
félagiö variö til þess afarmikiu fé. Nýlega hefir þaö birt kafla úr
ýmsum bréfum, frá einstaklingum, sem vitna um til hvaða blessunar
þetta hafi orðið fyrir sig. Hefir nú félagið einnig sett sér þa5
markmiö, að koma biblíunni á öll hafskip.
Fanny Crosby, blinda sálmaskáldiö fræga, dó í Bridgeport,.
Conn., um miöjan Febr. síöastl. Var hún á fimta árinu yfir nírætt.
Er ætlað, að hún muni hafa samið um 8,000 sálma. Áttu sálmar
hennar miklum vinsældum að fagna. “Safe in the arms of Jesus”
er ef til vill bezt þekti sálmur hennar, og er sagt að hún hafi sjálf
talið það sinn bezta sálm.
Komnar eru fréttir um að Tyrkir séu teknir til að myrða kristið
fólk í Persalandi. Enn þá eru ekki komnar greinilegar frásögur uirt
hve útbreidd þessi hryöjuv'erk eru, en því miður mun alt of mikið
vera í þessu hæft.
Tveir amerískir kirkjumenn, Prof. Shailer Matthews og séra
Sidney S. Gulick, voru í vetur sendir til Japan af kirkjufélags-
sambandi því, er nefnist The Federal Council of Churches. Erindi
þeirra átti að vera að efla vináttuböndin milli japönsku þjóðar-
innar og Bandaríkjaþjóðarinnar, og þannig beita áhrifum i gagn-
stæða átt við þá, er sífelt eru að ala á ófriðarhættu á milli þessarra
þjóða. Eáta blöðin í Japan að sögn vel yfir komu þeirra og telja
hana í hæzta máta tímabæra til aö eyða misskilningi og efla frið
og vináttu milli þjóöanna.
Hlutfallslega eru fleiri karlmenn í lútersku kirkjunni x Ameríku
en nokkurri annarri kirkjudeild. Telst svo til, að 49 af hundraði
séu karlmenn. Hjá Congregazíónalistum telst, að 49 af hundraöi
séu karlmenn; hjá Meþodistum og Presbýteríönum 37 af hundraði;
hjá Baptistum 38 af hundraði.
Fyrir liðugu ári síðan stofnaði hr. Charles G. Dawes í Chicago
nýtt greiðasölu- og gistihús, sem ætlað er atvinnulausum mönnum.
Ber það nafn sonar hans látins, er hét Rufus F. Dawes. Má þar fá
næturgistingu fyrir 5 cents, kaffibolla fyrir 2 cents, og alt eftir því.
179,000 manns gistu þarna árið sem leið. Og það sem meira er,
stofnunin þvinær bar sig sjálf. Á aö hækka svo gjaldið, að stofn-
unin beri sig og borgi 4 prócent vexti af höfuðstól. Nemur sú
hækkun 4 cent á hvern gest, ef jafnmargir verða og árið sem leið.
Er nú ráðið að byggja samskonar gistihús i öðrum stórborgum
landsins, og munu þau bera sama nafn. Er þetta mjög þarft fyrir-
tæki, og verður til hjálpar ótal mörgum, sem vilja reyna að bjarga
sér, án þess að skerða sjálfstæðistilfinningu þeirra með því að gera
þá að þurfamönnum.