Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1915, Page 10

Sameiningin - 01.04.1915, Page 10
42 1. Gruðdóm Jesú Krists. — Hefði liann ekki risið upp, væri sú kenning ósönn. Því þá liefði liann ekki uppfylt loforð sín, hin markverðustu alls hins óviðjafn- anlega, sein lieyrðist af vörum hans. 2. Annað líf. — Án upprisu Jesú væri sú kenning einungis bergmál mannkynsvonarinnar. Upprisa Jesú gerir þá von að vissu. “Faðir, eg vil að þeir, sem þú gafst mér, séu lijá mér, þar sem eg er, svo þeir sjái mína dýrð, sem þú gafst mér,” segir liann. 3. Skylda að rækja boð Jesú. — Hefði hann ekki risið upp, væri hann einungis maður. Boð hans væru ])á ujipörfunarorð mannlegs siðapostula, en ekki meira. En í Ijósi upprisunnar sést, að þau eru Gruðs orð, og þess vegna er liver maður skyldur að lilýða þeim. 4. Að hvert spor og fyrirtæki manna liér á jörðu, á fyrst og fremst að miðast við eilífðar-tilveruna og miða að eilífum þroska. Því er það, sem veitir einungis jarð- neskan stundarliagnað, fánýtt, en það, sem hefir eilíft gildi, alls um vert. 5. Dauðinn er ekki til.—Myndbreytiug, hamskifti, flutningur á sár stað, en enginn dauði, í þeim skilningi, að hann sé endir alls. Tíminn er liluti af eilífðinni, mannsæfin stuttur hluti túnans. “Dauðinn” er sporið, sem hver einn stígur, þá hann fer úr þeim lihita eilífðar- innar, sem menn tákna með áratölum, inn í þann lilut- ann, sem ekki er miðaður við tölur ára eða daga. 6. Vinir sjást og mega gera sér von um samvist hinumegin grafar. Kénningin um upprisu framliðinna er ákveðin að þessu leyti, en liinu er ekki sagt frá eins skýrt, “með livaða líkama eða í livaða mynd þú birtist.” Giuð svarar ekki forvitni manna, en liann sv’alar þorsta hjartnanna. Það eitt er fram tekið, sem fullvissar unri endurfundi og sælu lijá Guði. — Og það nægir mannlegrí þrá og veitir sælu. Kærleikurinn, sem fórnaði sjálfum sér, sýnir sig einnig hér. En við forvitni manna og fá- nýtum spumingum, er en sama svarið veitt og Heródes fékk forðum. Svarið er heilög þögn.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.