Fréttablaðið - 07.04.2011, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 7. apríl 2011 3
Þorbjörg Valdimarsdóttir text-
ílhönnuður og Heiða Eiríks-
dóttir fatahönnuður frum-
sýndu sína fyrstu fatalínu
undir merkinu Rain Dear,
á hátíðunum Hönnunar-
Mars og Reykjavík Fashion
festival nú á dögunum. Þar
vöktu þær athygli bæði erlendra
og innlendra gesta og þótti línan
koma á óvart.
„Við fengum frábær viðbrögð
og mikla athygli og hittum meðal
annars blaðamenn stórra erlendra
tískutímarita um helgina. Það
skiptir alltaf miklu máli fyrir
hönnuði, upp á trúverðugleika vör-
unnar,“ útskýrir Heiða.
„Við hönnum hátískufatnað á
konur á aldrinum 25 til 55 ára af
öllum stærðum og gerðum. Við
vinnum mikið með plastefni en
Rain Dear er þó ekki hugsað sem
útivistarfatnaður, heldur hátíska,“
segir Heiða en línan inniheldur
meðal annars litríkar kápur, slár
og samfestinga.
Fyrirtækið hafa þær stöllur
undirbúið síðustu tvö ár og eru
nú þegar komnar í samvinnu við
ítalskan framleiðanda sem bæði
býr til efnið í flíkurnar og fram-
leiðir þær.
„Allt efnið er sérútbúið fyrir
okkur en við látum vinna saman
ólíkar tegundir af efnum í eitt,
sem er nýsköpun út af fyrir sig,
en efnið er síðan gert vatnshelt.
Plast er auðvitað ekki umhverfis-
vænt efni en stefnan hjá okkur er
að hver kápa verði afhent í tösku
sem nýtist kaupandanum áfram.
Í framhaldinu verður svo skila-
gjald á gömlum kápum þannig að
afsláttur fæst af nýrri kápu og við
endurnýtum gömlu kápuna í hluti í
samvinnu við aðra hönnuði.“
Eftir vel heppnaða frumsýningu
er næsta skref að koma línunni á
markað. Von er á fyrstu vörunum
í verslanir snemma árs 2012 og er
stefnan tekin á útlönd.
„Við stefnum á Bretlandsmarkað
en erum að vinna markaðskönnun
í Skandinavíu líka. Nú leitum við
að umboðs- og dreifingaraðilum
til að koma vörunni á markað, en
varan fer í verslanir í byrjun árs
2012.“
Heiða segir mikinn kraft vera í
íslenskum hönnuðum, Hönnunar-
Mars og RFF sanni það og sýni.
Hún segir aðstandendur hátíðanna
eiga hrós skilið fyrir fagleg vinnu-
brögð. „Það var frábærlega að öllu
staðið, sérstaklega að fá hingað
blaðamenn frá virtum erlendum
fjölmiðlum í hönnunargeiranum.
Mér fannst einnig mikil samstaða
meðal íslenskra hönnuða, sem er
mikilvægt.“ heida@frettabladid.is
Tískulínan Rain Dear er ekki hugsuð
sem útivistarfatnaður þó vatnsheld sé,
heldur hátísku götufatnaður.
Línan vakti athygli bæði innlendra
og erlendra gesta á Reykjavík Fas-
hion Festival og stefna hönnuðirnir á
markaðssetningu erlendis.
Efnin eru samsett úr ólíkum efnisteg-
undum hjá ítölsku framleiðslufyrirtæki,
sem framleiðir einnig flíkurnar.
Heiða Eiríksdóttir og Þorbjörg Valdi-
marsdóttir hanna hátískufatnað á konur
af öllum stærðum og gerðum.
MYND/BJARNEY LÚÐVÍKSDÓTTIR
Rain Dear tískulínan á koppinn
Fatalínan Rain Dear vakti talsverða athygli gesta á nýafstöðnum HönnunarMars og á Reykjavík Fashion Festival, þar sem hún var frumsýnd.
Að baki línunni standa tvær konur – fatahönnuðurinn Heiða Eiríksdóttir og textílhönnuðurinn Þorbjörg Valdimarsdóttir.
CHANEL dagar í Hygeu Kringlu og
Hygeu Smáralind 7. - 10. apríl.
Verið velkomin í snyrtivöruverslun Hygeu. Chanel sérfræðingar
munu taka vel á móti ykkur og veita faglega ráðgjöf.
Nýjungar í Chanel:
• Rouge Coco Shine varalitur, nýjasta æðið í Chanel. Varalitur
sem eykur vellíðan og gefur 8 tíma raka. Frábærir litir.
• Nýtt “look” fyrir augu. Nýr maskari “Sublieme De
Chanel” augnhárin eru í aðalhlutverki, hann lengir,
brettir og þykkir.
• Næring fyrir augnhárin, góð undir maskarann og
einnig ein og sér yfir nótt. Verndar og nærir augnhárin.
• Augnskuggar bæði einfaldir nýir litir og fjórfaldir í
bláum tónum.
• Hydramax + Active kremlínan hjálpar þér að fríska upp
og viðhalda heilbrigði húðarinnar. Hydramax ver húðina
gegn eiturefnum frá umhverfinu og gefur henni mjög
góðan raka.
Nýtt í línunnni; Hydra Beauty serum, mjög kröftugur
rakagjafi fyrir húðina, mýkir hana og fyllir orku svo hún
ljómar af heilbrigði.
Glæsileg gjöf fylgir þegar keyptir
eru tveir hlutir eða fleiri, þar af eitt
krem í Chanel.
Gjöfin er Chanel snyrtitaska.*
* Á meðan birgðir endast.